Upp­gjörið: KR – Breiða­blik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
KR-ingar fagna jöfnunarmarki Arons Sigurðarsonar eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en þeim tókst ekki að ná inn sigurmarki.
KR-ingar fagna jöfnunarmarki Arons Sigurðarsonar eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en þeim tókst ekki að ná inn sigurmarki. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

KR og Breiðablik skildu jöfn 3-3 í stórskemmtilegum leik í 19. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Blikar leiddu með tveimur mörkum í hálfleik en ólíkt því sem gerðist þegar liðin mættust fyrr á leiktíðinni þá kom KR til baka.

Það var frábært veður sem tók á móti liðunum á Meistaravöllum í kvöld. Leikurinn var nokkuð jafn framan af og fengu bæði lið færi til að brjóta ísinn. Það voru hins vegar gestirnir úr Kópavogi sem voru fyrstir á blað í kjölfar þess að Anton Ari Einarsson hafði átt frábæra markvörslu eftir lúmskan skalla Eiðs Gauta Sæbjörnssonar.

Kristófer Ingi Kristinsson skoraði tvö mörk fyrir Blika í kvöld en það dugði Breiðabliki ekki að komast í 3-1.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Kristófer Ingi sýndi mátt sinn og megin

KR-ingar lentu í brasi í eigin teig sem endaði með því að Óli Valur Ómarsson fann Kristófer Inga Kristinsson, sem var hreint út sagt magnaður í dag, og skoraði með föstu skoti á mitt markið.

Ekki löngu seinna fengu gestirnir vítaspyrnu þegar Halldór Snær Georgsson braut á Þorleifi Úlfarssyni. Halldór Snær bætti hins vegar upp fyrir mistökin og varði spyrnu Höskuldar Gunnlaugssonar. Spyrnan var föst niður til vinstri frá Höskuldi séð en Halldór Snær las hana líkt og opna bók.

Halldór Snær las hins vegar aukaspyrnu Kristófers Inga á 38. mínútu ekki jafn vel. Varla var um skotfæri að ræða en Kristófer Ingi sneri boltann fram hjá varnarveggnum og niður í hornið hægra. Staðan var orðin 0-2 og leikmyndin farin að minna á leik liðanna í Kópavoginum. Honum lauk með 6-3 sigri Breiðabliks.

Eiður Gauti Sæbjörnsson fagnar hér marki sínu í kvöld.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Eiður Gauti minnkaði muninn með marki á fjærstöng eftir góða fyrirgjöf Luke Rae og stefndi í að eitt mark myndi skilja liðin að í hálfleik. Annað kom þó á daginn þar sem Höskuldur tíaði boltann upp fyrir Ágúst Orra Þorsteinsson sem skoraði með skoti af stuttu færi í blálok fyrri hálfleiks. Staðan var 1-3 í hálfleik.

Snýst allt um ást og trú

Eftir rólegar upphafsmínútur í síðari hálfleik skall flóðbylgjan sem KR getur verið á Blikum. Fyrst minnkaði Ástbjörn Þórðarson metin með skalla eftir hornspyrnu Arnórs Ingva Traustasonar. Svo ekki löngu síðar gaf Galdur Guðmundsson á fyrirliðann Aron Sigurðarson sem skoraði með föstu skoti milli fóta Antons Ara og staðan orðin jöfn 3-3.

Bæði lið fengu urmul færa og hefðu hæglega getað bætt við fjórða markinu en allt kom fyrir ekki, bæði þökk sé góðum leik markvarða kvöldsins sem og almennt slakri nýtingu færa.

Niðurstaðan því 3-3 jafntefli í stórskemmtilegum leik. Stigið gerir hins vegar lítið fyrir bæði lið en KR er nú átta stigum á eftir toppliði Víkings og Breiðablik sjö stigum á eftir Fram sem situr í 3. sæti.

Atvik leiksins

Hvar á ég að byrja? Þakið ætlaði að rifna af annars gamalli KR-stúku þegar Aron Sig jafnaði metin í síðari hálfleik. Það er svo rannsóknarefni að það hafi ekki komið sigurmark í þennan leik.

Stjörnur og skúrkar

Kristófer Ingi var hreint út sagt magnaður í liði Breiðabliks í kvöld. Hann skoraði tvö mörk, var góður í uppspili og var sem KR vissi ekki alveg hvernig ætti að höndla hann og Þorleif Úlfarsson saman í fremstu línu.

Aron Sig átti að sama skapi góðan leik í liði heimamanna og þó að Halldór Snær sé eflaust ósáttur við að fá á sig þrjú mörk – þar af eitt úr lúmskri aukaspyrnu – þá var hann mjög öflugur í kvöld. Anton Ari stóð vaktina vel í liði Breiðabliks og þá minnti Ágúst Orri á sig.

Erfitt er að setja einhvern á skúrk en Arnór Ingvi fékk HAUG af færum og þó að hann hafi lagt upp mark úr hornspyrnu voru fullmargar sem fóru á grænan.

Umgjörð og stemmning

Gott veður hefur alltaf sitt að segja og það var virkilega vel mætt á Meistaravelli í kvöld. Það var svo gott sem smekkfullt þegar 10–15 mínútur voru í leik, eitthvað sem er ekki algengt á Íslandi. 2887 manns mættu í Vesturbæinn og voru ekki svikin.

Dómarinn

Fín frammistaða og hann hélt línunni sem hann setti. Ekki mikið meira um það að segja þó að bæði lið hafi viljað fleiri aukaspyrnur en þau fengu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira