Upp­gjörið : Breiða­blik - Þróttur R. 2-0 | Ís­lands­meistararnir reyndust of stór biti

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Edith fagnar fyrsta markinu.
Edith fagnar fyrsta markinu. Vísir/Vilhelm

Ríkjandi Íslandsmeistarar í Breiðablik sigraðu Þrótt 2-0 í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld.

Leikurinn byrjaði hægt og var afar jafn milli liðanna. Hvorugt liðið tókst að skapa sér almennileg færi fyrsta hálftímann. Edith Kristín Kristjánsdóttir braut svo ísinn með marki fyrir Breiðablik á 34. mínútu eftir frábæran langan bolta frá Öglu Maríu Albertsdóttur inn fyrir vörn Þróttar.

Fimm mínútum síðar tvöfaldaði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir forystu Breiðabliks eftir vel útfærða hornspyrnu og stoðsendingu frá Öglu. 2-0 og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Þróttur kom út í síðari hálfleik líkt og í þeim fyrri og var leikurinn nokkuð jafn á milli liðanna. Bæði lið fengu fín færi en tókst ekki að nýta þau.

Breiðablik fékk tvo dauðafæri á skömmum tíma í lok leiks en hvorugt skot hitti á rammann.

Niðurstaðan 2-0 sigur Breiðabliks og þrjú stig í bankann.

Stjörnur og skúrkar

Ása og Edith með mörkin fyrir Breiðablik. Agla María var svo öflug eins og svo oft áður og var með tvær frábærar stoðsendingar.

Ása fagnar sínu marki.Vísir/Vilhelm

Stemning og umgjörð

Það var frábær mæting hjá báðum liðum á Kópavogsvöll í kvöld. Yndislegt veður og Blikar góðir á grillinu eins og venjulega. Bæjarins besta var einnig með bás og það getur verið erfitt að neita sér um eina góða pulsu.

Dómarar

Róbert Þór Guðmundsson var á flautunni í dag, með honum voru þeir Tryggvi Elías Hermannsson og Jón Reynir Reynisson. Engin vafamál að mínu mati og fékk leikurinn að flæða vel.

Dómarateymi kvöldsins.Vísir/Vilhelm

Viðtöl

Ian Jeffs: „Týpiskt fyrsti leikur tímabilsins”

„Fyrstu 20 mínúturnar voru svona týpiskt fyrsti leikur tímabilsins, frekar margar mishepnaðar sendingar og hátt spennustig hjá flestum leikmönnum. eftir fyrsta markið þá fannst mér róast aðeins hjá okkar

leikmönnum og við skorum annað mark og hefðum kannski átt að skora þriðja 

markið líka en það kom ekki. Ég er bara ánægður með frammistöðuna”.

„Ég hefði viljað sjá mitt lið halda aðeins betur í boltann í dag, við vorum að reyna að sækja of hratt og það vantaði smá meiri þolinmæði í leikmennina í dag fannst mér, að tengja fleiri sendingar og bíða eftir rétta augnablikinu.  Varnalega séð bara góður leikur hjá okkur, ég man ekki eftir neinu svona dauðafæri hjá Þrótti í dag og við hefðum átt að skora fleiri mörk með þessi færi sem við fengum í lok

leiksins.“

Jóhann Kristinn Gunnarsson: „Til há­borinnar fyrir­myndar og ég er á­nægður með það“

 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir: „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira