Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 24. apríl 2026 18:31 Edith fagnar fyrsta markinu. Vísir/Vilhelm Ríkjandi Íslandsmeistarar í Breiðablik sigraðu Þrótt 2-0 í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Leikurinn byrjaði hægt og var afar jafn milli liðanna. Hvorugt liðið tókst að skapa sér almennileg færi fyrsta hálftímann. Edith Kristín Kristjánsdóttir braut svo ísinn með marki fyrir Breiðablik á 34. mínútu eftir frábæran langan bolta frá Öglu Maríu Albertsdóttur inn fyrir vörn Þróttar. Fimm mínútum síðar tvöfaldaði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir forystu Breiðabliks eftir vel útfærða hornspyrnu og stoðsendingu frá Öglu. 2-0 og þannig stóðu leikar í hálfleik. Þróttur kom út í síðari hálfleik líkt og í þeim fyrri og var leikurinn nokkuð jafn á milli liðanna. Bæði lið fengu fín færi en tókst ekki að nýta þau. Breiðablik fékk tvo dauðafæri á skömmum tíma í lok leiks en hvorugt skot hitti á rammann. Niðurstaðan 2-0 sigur Breiðabliks og þrjú stig í bankann. Stjörnur og skúrkar Ása og Edith með mörkin fyrir Breiðablik. Agla María var svo öflug eins og svo oft áður og var með tvær frábærar stoðsendingar. Ása fagnar sínu marki.Vísir/Vilhelm Stemning og umgjörð Það var frábær mæting hjá báðum liðum á Kópavogsvöll í kvöld. Yndislegt veður og Blikar góðir á grillinu eins og venjulega. Bæjarins besta var einnig með bás og það getur verið erfitt að neita sér um eina góða pulsu. Dómarar Róbert Þór Guðmundsson var á flautunni í dag, með honum voru þeir Tryggvi Elías Hermannsson og Jón Reynir Reynisson. Engin vafamál að mínu mati og fékk leikurinn að flæða vel. Dómarateymi kvöldsins.Vísir/Vilhelm Besta deild kvenna Breiðablik Þróttur Reykjavík
Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Íslenski boltinn
Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Íslenski boltinn