Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 22. apríl 2026 20:00 Vísir/Guðmundur Breiðablik gerði markalaust jafntefli við nýliða Keflavíkur er liðin mættust í Keflavík í fyrsta grasleik tímabilsins í Bestu deildinni í fótbolta. Markalaust á HS orku vellinum. Leikur sem fer seint í sögubækur fyrir gott skemmtanagildi. Breiðablik gerði markalaust jafntefli við nýliða Keflavíkur er liðin mættust í Keflavík í fyrsta grasleik tímabilsins í Bestu deildinni í fótbolta. Markalaust á HS orku vellinum. Leikur sem fer seint í sögubækur fyrir gott skemmtanagildi. Gestirnir frá Kópavogi áttu upphafssparkið og fyrsta hálffæri leiksins eftir tvær mínútur þegar Kristófer Ingi Kristinsson renndi boltanum fyrir markið í hlaup hjá Davíð Ingvarssyni en Ásgeir Orri Magnússon var mættur út á móti að loka. Keflavík átti flotta spilkafla og voru að ógna Breiðablik en þó án þess að skapa sér alvöru færi. Breiðablik á móti átti í töluverðu brasi með að halda í boltann á móti öflugri pressu frá heimamönnum. Breiðablik bitu aðeins frá sér undir lok fyrri hálfleiks en marktækifæri Kristófers Inga Kristinssonar og Davíðs Ingvarssonar rötuðu ekki á rammann. Eftir heldur tíðindarlítinn fyrri hálfleik var staðan markalaus í hálfleik. Gestirnir byrjuðu seinni hálfleikinn á flottu færi frá Jónatan Guðna Arnarssyni en hann átti gott skot sem fór rétt framhjá strax í upphafi seinni. Leikurinn var í járnum lengst af í seinni hálfleik og bæði lið skiptust á því að koma sér í ágætis stöður þó án þess að skapa sér alvöru marktækifæri úr því. Þegar flautað var til leiksloka var staðan markalaus og fóru liðin heim með sitthvort stigið á haus. Atvik leiksins Lokaflautið var hápunkturinn í kvöld. Þessi leikur verður ekki endursýndur á mörgum heimilum landsmanna í bráð. Stjörnur og skúrkarDavíð Helgi Aronsson var öflugur í öftustu línu Keflavíkur og fær hrós fyrir það.Skúrkarnir eru kannski sóknarmenn liðana að bjóða okkur ekki upp á einhver alvöru færi í leiknum en þeir komust oft í góðar stöður.DómararnirSigurður Hjörtur Þrastarson var á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar voru Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Ekki erfiður leikur að dæma og komst teymið bara vel frá sínu.Stemingin og umgjörðÞað var nóg af sætum í stúkunni í kvöld. Heyrðist lítið í stúkunni Keflavíkurmeginn framan af en heyrðist þó aðeins í Blikum. Hefði verið skemmtilegra að sjá fleiri andlit í stúkunni en fullt hrós á þau sem mættu.ViðtölHaraldur Guðmundsson þjálfari KeflavíkurVíkurfréttir„Verðum að gera þennan völl að okkar vígi“„Erfiður völlur, apríl á grasi og svona varla tilbúin“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir leik í kvöld.„Mér fannst við spila vel á aðstæðurnar. Við töluðum um það að vera kannski ekki í miklu smá spili og koma boltanum snemma inn í teig og láta okkar fremstu menn snemma í vinnu“„Fá boltann inní og vinna seinni bolta og annan bolta og mér fannst við gera það mjög vel en vantaði kannski svona herslumuninn að skapa meiri færi og opna sénsa“„Heilt yfir ánægður með strákana og þeir lögðu sig alla í þetta og voru baráttuglaðir og voru tilbúnir að vinna fyrir hvorn annan og uppskeran er eitt stig. Það er kannski ásættanlegt“Það voru ekki endilega margir sem sáu fyrir sér að Keflavík myndi ná einhverju úr þessum leik.„Breiðablik eða hvaða lið sem kemur hingað. Við bara ætlum að vinna alla leiki hvort sem að það sé hér eða út. Við förum í alla leiki til þess að vinna þá“„Sérstaklega hérna heima. Við verðum að gera þennan völl að okkar vígi og við þurfum á heimavelli að ná í þessi stig“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson.Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks.Guðmundur/Vísir„Erum vanir því að vera á gervigrasi þar sem boltinn flýtur hraðar“„Erum auðvitað pínu svekktir að vinna ekki þennan leik“ sagði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks eftir leik í kvöld.„Við vorum svolítið lengi í gang. Við vorum lengi að finna völlinn og vorum aðeins að spila okkur í smá klandur hérna í byrjun leiks“„Mér fannst við virkilega góðir í seinni hálfleik svona miðað við aðstæður. Við sköpum 1-2 góð færi og svo fullt af stöðum þar sem að við getum gert miklu mun betur í og getum skapað dauðafæri en við tökum vitlausar ákvarðanir kannski og færið rennur þá út í sandinn“Breiðablik hefur verið gangrýnt í upphafi móts fyrir stirðan sóknarleik og þær raddir verða eflaust ekki minni eftir leikinn í kvöld.„Meiri kannski ákvörðunartaka heldur en gæðaleysi. Ekki það að það sé nein afsökun en vallaraðstæður, þær spila inn í. Það er ekkert auðvelt að spila á þessum velli þó svo að hann sé ágætur“„Við erum vanir því að vera á gervigrasi þar sem boltinn flýtur hraðar. Við eigum að geta gert betur en mér fannst við samt vera bara flottir í seinni hálfleik“ sagði Ólafur Ingi Skúlason.
Besta deild karla Keflavík ÍF Breiðablik Mest lesið Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti Haaland skaut Manchester City á toppinn Enski boltinn Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti Rosenior rekinn frá Chelsea Enski boltinn „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Íslenski boltinn Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Íslenski boltinn Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Enski boltinn Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Fleiri fréttir ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Sjá meira
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti