Klopp útskýrði af hverju hann hafnaði Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 21. október 2025 10:33 Jürgen Klopp hafnaði tækifærinu til að stýra Manchester United. Getty/John Powell „Þetta var ekki verkefni að mínu skapi,“ segir Jürgen Klopp í nýju viðtali um ástæðu þess að hann hafnaði því að taka við Manchester United af Sir Alex Ferguson árið 2013.
Klopp ræddi um þetta í The Diary of a CEO sem sjá má hér að neðan. Þar greindi hann einnig frá því að ekki væri útilokað að hann yrði einhvern tímann aftur knattspyrnustjóri Liverpool. Klopp sagði erfitt að ræða um það opinberlega af hverju hann hafnaði United á sínum tíma og hélt áfram að stýra Dortmund, áður en hann tók svo við Liverpool tveimur árum síðar eða 2015. „Það voru hlutir sem þetta fólk sagði sem að mér líkaði ekki við. „Við fáum alla leikmennina sem þú vilt… við fáum hann, og hann, og hann.“ Og ég bara sat þarna og hugsaði: Já, þetta er ekki verkefni að mínu skapi. Þetta var ekki rétti tímapunkturinn en ofan á það þá var þetta ekki verkefni að mínu skapi,“ sagði Klopp í viðtalinu, sem sjá má hér að neðan. Klopp sagði forráðamenn United hafa virst mikið uppteknari af því að sækja til sín stjörnuleikmenn en að búa til langtímafótboltaplan. „Ég vildi ekki vera að sækja aftur leikmenn, eins og Pogba. Pogba er stórkostlegur leikmaður, Guð minn góður, en svona hlutir ganga yfirleitt ekki upp. Eða með Cristiano Ronaldo. Við vitum öll að hann er ásamt Messi bestur í heiminum. En það hjálpar aldrei að fá menn svona til baka. Á þessum tíma, 2013, snerist þetta auðvitað ekki um Cristiano, kannski Pogba, ég man það ekki, en hugmyndin var bara að við ættum að fá alla bestu leikmennina og keyra á þetta,“ sagði Klopp. Spjallið hafi þannig ekkert snúist um fótbolta. „Ég sat þarna og hugsaði; þetta er ekki fyrir mig.“ Klopp segist svo hafa fengið allt aðra tilfinningu þegar hann ræddi við Mike Gordon, formann Fenway Sports Group, um að taka við Liverpool. Það gerði hann árið 2015 og vann með liðinu langþráðan Englandsmeistaratitil 2020, Evrópumeistaratitil og heimsmeistaratitil 2019, bikarmeistaratitil 2022 og tvo deildabikarmeistaratitla.
Enski boltinn Mest lesið CrossFit-kona fær fjögurra ára bann fyrir að breyta myndbandi Sport Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Enski boltinn „Ef ég sé hann á æfingu þá brýt ég á honum lappirnar“ Fótbolti Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir Handbolti Liverpool-goðsögn greind með heilabilun Enski boltinn „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Handbolti Íþróttakona dæmd í tíu ára bann Sport Elsti sonur Ronaldo æfir með Real Madrid Fótbolti „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ Handbolti Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Handbolti Fleiri fréttir Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Liverpool-goðsögn greind með heilabilun Samfélagsskjöldurinn þarf að víkja af Wembley fyrir The Weeknd Tíu flottustu mörk Salah í enska boltanum Finnst Salah vera meiri goðsögn í ensku úrvalsdeildinni en Ronaldo Stuðningsmaður Man. United missir sætið sitt: „Ég er hjálparvana og vonlaus“ Pochettino segist sakna enska boltans Salah yfirgefur Liverpool eftir tímabilið PSG vill auðvelda sér lífið fyrir Liverpool-leikinn Úr fernu yfir í einn bikar: „Hugsa með hryllingi til þess hvað Barcelona gæti gert Arsenal“ Gordon: „Sunderland ekkert sérstaklega góðir miðað við Newcastle“ „Þeir Pétur Jóhann eru tengdir við sama dýrið en annar á mjög neikvæðan hátt“ Kallaði skiptingu Foden „góðgerðarskiptingu“ Fullkomin helgi fyrir hetju City: Sigur okkar er áfall fyrir Arsenal Sjötti leikmaður Arsenal missir af landsleikjum í mars „Arteta skuldar Kepa ekki neitt heldur stuðningsmönnum Arsenal“ Messan: Vill að Solskjær taki við Spurs Sjáðu Brobbey brjóta hjörtu, Watkins svara fyrir sig og Spurs steinliggja Skoðaði drykk Alberts eftir umræðu um vítin Sjáðu afmælisstrákinn tryggja titilinn og tvöfalt klúður Kepa Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjá meira