Upp­gjörið: Breiða­blik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópa­vogi

Árni Jóhannsson skrifar
Læti urðu eftir að Breiðablik jafnaði metin gegn Fram
Læti urðu eftir að Breiðablik jafnaði metin gegn Fram Vísir / Hulda Margrét

Breiðablik náði í jafntefli gegn Fram fyrr í kvöld. Fram var einu marki yfir þegar komið var í uppbótartíma þegar heimamenn fengu víti í uppbótartímar sem Haöskuldur Gunnlaugsson skoraði úr. Fram getur verið ósáttari aðilinn í lok leiks þar sem þeir gerðu virkilega vel úr sínum aðgerðum.

Fram sýndi það strax í byrjun að þeir ætluðu að vera kraftmiklir fram á við þegar þeir myndu vinna boltann en eftir nokkrar mínútur náðu Breiðablik valdi á leiknum og voru meira með boltann en náðu ekki að skapa færi til að ná inn markinu sem þeir þráðu. Fram gat verið sáttari aðilinn eftir fyrri hálfleik þar sem þeir náðu að nýta sína krafta, það er að segja, liggja þétt til baka og sprengja upp völlinn þegar þeir unnu boltann og komu heimamönnum í meira vesen í varnarleik sínum.

Kennie Chopart með Andra Yeoman í fanginu. Vísir / Hulda Margrét

Staðan var 0-0 í hálfleik og mál manna í blaðamannstúkunni að fjör hefði vantað í fyrri hálfleikinn. Það átti heldur betur eftir að breytast í seinni hálfleik. Strax á fjórðu mínútu seinni hálfleik skoraði Vuk Oskar Dimitrijevic mark, en þetta er fimmti leikurinn í röð sem hann skorar, Fram gerði vel í að vinna boltann og þeysast upp völlinn. Þar komst Freyr Sigurðsson upp að teignum, sendi boltann á Kennie Chopart sem sneiddi boltann inn í teiginn þar sem Vuk var mættur til að spyrna boltanum í netið. Nánast óverjandi fyrir Anton.

Vuk Oskar fagnar marki sínu. Hann hefur skorað í fimm leikjum í röð.Vísir / Hulda Margrét

Eftir það þá voru Blikar meira og minna með boltann án þess, aftur, að ná að skapa sér færi. Fram gerði þó vel í að reyna að sprengja upp völlinn og skapa sér stöður en ekki mörg færi. Þeir áttu þó sláar skot strax eftir markið sitt og þar á eftir átti Róbert Haukson að gera betur í að fylgja á eftir því skoti en hann fékk boltann nánast í sig og þaðan fór boltinn yfir markið. 

Róbert Hauksson klikkaði á dauðafæri.Vísir / Hulda Margrét

Þegar klukkan small í 90 mínútur var dæmd vítaspyrna. Það er hægt að deila um það hvort dómurinn hafi verið réttur en hún stóð og Höskuldur Gunnlaugsson skoraði úr vítinu. Aðdragandi vítisins var þannig að Blikar náðu að skapa sér færi og Höskuldur hafði skallað í stöng af eins meters færi og þegar Ágúst Orri Þorsteinsson var að fara að taka frákastið og ná skoti þá virtist Israel Moreno sparka aftan í hann og vítið dæmt.

Leikmenn Fram trúa ekki eigin augum né eyrum eftir að dæmt var víti í lok leiksins.Vísir / Hulda Margrét

Eftir að vítið var dæmt þá varð heldur betur hamagangur í öskjunni. Blikar reyndu að ná boltanum fljótt úr netinu en leikmenn Fram voru fyrri til og lágu menn eftir handalögmálin og Höskuldur og Kyle McLagan voru reknir af velli fyrir sína þætti í látunum. Hægt er sjá þetta atvik í fréttinni að neðan.

Leikurinn fór sjö mínútur í uppbótartíma og Blikar reyndu eins og þeir gátu að stela sigrinum en náðu því ekki. Fram náði heldur ekki að gera sér mat úr sínum stöðum og 1-1 jafntefli niðurstaðan. 

Eftir vítið sauð upp úr.Vísir / Hulda Margrét

Atvik leiksins

Það er að sjálfsögðu atvikið sem hægt er að sjá í fréttinni hér að ofan. Víti sem er umdeilt og svo slagsmál og læti strax þar á eftir.

Handalögmál sem dómarar leiksins reyndu að róa.Vísir / Hulda Margrét

Stjörnur og skúrkar

Blaðamanni fannst vanta kraft á löngum köflum í leik Breiðabliks og sendingar á lokaþriðjungi vallarins oft misheppnaðar og ekki við neinn einn að sakast í þeim efnum. Hjá Fram er hægt að horfa til Vuk sem skoraði en varnarmenn Fram gerðu einnig vel í að t.d. halda Tobias Thomsen í skefjum en hann hefur verið einn af heitari framherjum í deildinni í sumar.

Dómarinn

Arnar Þór Stefánsson hefur líklega átt betri daga. Hann geymdi spjöldin í vasanum lengi vel í kvöld þó það hefði mátt finna atvik þar sem hefði mátt spjald láta fylgja með tiltalinu sem hann var að veita mönnum. Svo er vítadómurinn umdeildur svo ekki meira sé sagt.

Arnar Þór Stefánsson stóð í ströngu.Vísir / Hulda Margrét

Umgjörð og stemmning

Aðstæður frábærar í dag til að leika fótbolta og eftir lítið fjör í fyrri hálfleik fékk leikurinn það ris sem veðrið bauð upp á.

Viðtöl:

Rúnar: Tökum stigið og erum sáttir með það

Rúnar Kristinsson gat leyft sér að vera ánægður með frammistöðuna.Vísir / Hulda Margrét

Þjálfari Fram, Rúnar Kristinsson, var furðu rólegur þegar hann mætti í viðtal strax eftir hasar leik þar sem mætti segja að Fram hafi tapað tveimur stigum á mjög ódýrri vítaspyrnu. Hann var spurður út vítaspyrnudóminn í lok leiks og hans álit á honum.

„Mér fannst þetta vera víti þegar ég sá þetta af bekknum en eftir að hafa séð myndir og rætt við þann sem dæmt var á þá er þetta náttúrlega aldrei víti. Þeir fá víti hérna á silfurfati og þess vegna fúlt að tapa þessu en við hefðum átt að vera búnir að skora fleiri mörk. Við hefðum átt að skora í fyrri hálfleik og áttum besta færi leiksins strax eftir að við skorum. Við getum sjálfum okkur um kennt, við féllum dálítið mikið niður en áttum alveg haug af skyndisóknum sem við hefðum átt að nýta betur.“

„Ég man ekki til þess að þeir hafi átt skot á mark eða færi í fyrri hálfleik. Fullt af fyrirgjöfum og þrýstu boltanum í inn í teiginn einu sinni tvisvar í síðari hálfleik en aldrei stórhætta. Við hefðum átt að vera búnir að klára leikinn.“

Að öllu þessu sagt gat Rúnar ekki verið ánægður með frammistöðu liðsins síns í kvöld þó að úrslitin hafi ekki verið fullkomin?

„Jú, frammistaðan var bara frábær. Stig hér er bara mjög gott. Við getum grenjað yfir einhverju en þetta er bara svona í boltanum. Dómarinn sér þetta bara svona og dæmir. Hann er ekki að gefa þeim eitt né neitt, hann er ekki að leika sér að þessu. Þetta er bara það sem hann telur sig sjá og við getum ekki verið að væla yfir því. Þetta er bara svona í boltanum en við getum horft í eigin barm að hafa ekki nýtt þetta dauðafæri þar sem við skjótum í slána og Róbert Haukss. setur frákastið yfir markið. Þá er staðan 2-0 og þá hefðum við kannski verið rólegri í skyndisóknunum og nýtt forystuna betur þegar ekki mikið var eftir af leiknum. Við tökum stigið og erum sáttir með það.“

„Við erum búnir að eiga flottar frammistöður í sumar og höfum átt nokkrar í röð núna og við þurfum að halda þessu gangandi. Við þurfum að halda áfram að safna stigum því hvert einasta stig er dýrmætt í þessari baráttu og þó við höfum spilað vel í dag og lokað vel á sóknaraðgerðir Blika. Sérstaklega í fyrri hálfleik, þá þýðir það ekki að við getum mætt afslappaðir í næsta leik. Öðruvísi verkefni að mæta Eyjamönnum í næsta leik og menn verða bara að vera klárir í slaginn hverju sinni. Það er stutt niður og ekkert voðalega langt upp þó það lengist örlítið núna. Við erum enn að reyna að berjast við að vera í topp sex og við ætlum að reyna að berjast við að vera þar.“

Það styttist í félagsskiptagluggann og Jón Daði Böðvarsson er líklegur til að semja við lið á Íslandi. Hefur Fram haft samband við hann?

„Nei, við höfum ekki náð í hann. Ég veit ekki hvort hann hafi áhuga á Fram en eins og ég sagði um daginn þá viljum við reyna að bera víurnar í góða fótboltamenn og allavega bjóða þeim upp á samtalið. Og ef þeir þiggja það ekki og hafa metnað fyrir einhverju öðru þá skilur maður það og virðir það. Ef við náum sambandi við hann þá væri gaman að fá að tala við hann. Hann kom og æfði með okkur nokkrum sinnum í fyrra til að halda sér í standi. Flottur strákur, algjör perla af leikmanni og hefur skilað sínu fyrir Ísland og auðvitað held ég að öll liðin vilji fá hann til sín.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira