Clooney birti skoðanagrein á vef New York Times í dag þar sem hann sagði Biden ekki sama mann og hann var fyrir fjórum árum. Þá sagðist hann hættur að styrkja framboðið. Sjálfur hefur Clooney tekið þátt í starfsemi Demókrataflokksins og lýst sjálfum sér sem lífstíðardemókrata.
Í síðasta mánuði stóð Clooney til að mynda fyrir fjáröflunarviðburði fyrir kosningaherferð Biden, tveimur vikum áður en fyrri kappræðurnar fóru fram. Þar söfnuðust þrjátíu milljón Bandaríkjadalir og Biden sagði viðburðinn stærstu fjáröflun í sögu flokksins.
„Það er átakanlegt þurfa að segja þetta, en Joe Biden sem ég umgekkst fyrir þremur vikum á fjáröflunarviðburðinum er ekki hinn mikli Joe Biden sem við sáum árið 2010,“ stendur meðal annars í grein leikarans.
„Hann var ekki einu sinni sá Joe Biden sem við sáum árið 2020. Hann var sami maður og við sáum öll í kappræðunum. [...]. Var hann þreyttur? Já. Slappur? Kannski. En forystufólk flokksins verður að hætta að segja okkur að 51 milljón manns hafi ekki orðið vitni að því sama og við,“ segir jafnframt í greininni. Hann sagði útilokað að flokkurinn ynni kosningarnar í nóvember með Biden í forystu.
„Þetta er ekki bara mín skoðun. Þetta er skoðun hvers einasta þingmanns í öldungadeild og fulltrúadeild sem ég hef talað við undir fjögur augu,“ skrifar Clooney og segir alla vega hvort þeir viðri þá skoðun opinberlega.
Tíminn sé naumur
Nancy Pelosi, fyrrverandi þingforseti fulltrúadeildar Bandaríkjanna, sagði í viðtali á MSNBC í dag að hún hefði hvatt samstarfsmenn sína í þinghúsinu til að bíða með að viðra efasemdir sínar um framboð Biden fram yfir leiðtogafund NATO. Fundurinn fór fram í Washington í gærkvöldi.
„Ég er búin að segja við alla, bíðum aðeins með þetta. Hvað sem þið eruð að hugsa, talið um það í trúnaði. Þið þurfið ekki að viðra þessar skoðanir þar til við sjáum hvernig fer þessa vikuna,“ sagði Pelosi og vísaði í leiðtogafundinn. Hún sagði frammistöðu Biden á fundinum glæsilega.
Í viðtalinu gat Pelosi ekki sagt hreint út að hún vildi sjá Biden halda áfram í kosningabaráttunni. „Ég vil að hann geri það sem hann vill. [...]. Við erum öll að hvetja hann til að taka þá ákvörðun sem fyrst vegna þess að tíminn er naumur,“ sagði Pelosi.