Engin vandræði á Liverpool

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mohamed Salah skoraði þriðja mark Liverpool í dag.
Mohamed Salah skoraði þriðja mark Liverpool í dag. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images

Liverpool vann öruggan sigur er liðið tók á móti Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 3-0 og Liverpool fer taplaust í gegnum októbermánuð.

Eins og við var að búast voru heimamenn í Liverpool mun sterkari aðilinn í leik dagsins, en það tók þá rauðklæddu rúmlega hálftíma að brjóta ísinn. Þá var Portúgalinn Diogo Jota á ferðinni, en aðeins fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Darwin Nunez forystu Liverpool eftir stoðsendingu frá Dominik Szoboszlai.

Staðan í hálfleik var því 2-0 og útlitið svart fyrir gestina.

Mohamed Salah svo þriðja markinu við á 77. mínútu eftir stoðsendingu frá áðurnefndum Dominik Szoboszlai og þar við sat. Niðurstaðan öruggur 3-0 sigur Liverpool sem nú situr í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 23 stig eftir tíu leiki, þremur stigum á eftir toppliði Tottenham.

Nottingham Forest situr hins vegar í 16. sæti með tíu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira