Öruggt hjá Totten­ham | Bam­ford hetja Leeds

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Heung-Min Son var á skotskónum í dag.
Heung-Min Son var á skotskónum í dag. Chris Brunskill/Getty Images

Tottenham Hotspur vann þægilegan 3-0 sigur á botniliði Norwich City er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þá bjargaði Patrick Bamfordstigi fyrir Leeds United er liðið gerði 2-2 jafntefli við Brentford.

Lucas Moura, Davinson Sanchez og Heung-Min Son sáu til þess að Tottenham vann einkar sannfærandi 3-0 sigur á botnliði Norwich City.

Bamford hefur verið mikið frá vegna meiðsla á leiktíðinni en tryggði sínum mönnum stig með marki í blálokin er Brentford heimsótti Elland Road.

Tyler Roberts kom Leeds yfir og var staðan 1-0 í hálfleik. Shandon Baptiste og Sergi Canos komu gestunum í 2-1 en Bamford steig upp þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og jafnaði metin í 2-2, reyndust það lokatölur leiksins.

Tottenham er í 5. sæti deildarinnar með 25 stig, Brentford er í 11. sæti með 17 stig, Leeds í 14. sæti með 16 stig og Norwich á botninum með 10 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira