Erlent

Fjörutíu rústuðu hóteli í Madrid

Borgarbúum í Madrid bauðst óvenjuleg skemmtun á dögunum. Fjörutíu heppnir sjálfboðaliðar fengu að grípa sér sleggjur og brjóta allt og bramla á herbergjum á NH-hótelinu þar í borg.

 Ákveðið hafði verið að endurinnrétta hótelið og hótelstjórinn ákvað að nýta sér niðurstöður rannsókna um að íbúar Madridar séu haldnir mikilli streitu.



„Ég er uppgefinn, en mjög afslappaður,“ sagði Pablo Varela, þrítugur kennari sem sér um nemendur með hegðunarvandamál. Varela var einn sjálfboðaliðanna sem tóku þátt í atganginum.



Sjálfboðaliðarnir fá að launum að gista á hótelinu þegar það hefur verið gert upp. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×