Man. United kannar áhuga stuðningsmanna sinna fyrir breytingum á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2016 08:00
Enska úrvalsdeildarliðið Manchester United skoðar nú möguleikann á því að breyta Old Trafford til að útbúa stað eða staði á leikvanginum þar sem áhorfendur hafi ekki sæti heldur standi eins og tíðkaðist hér áður fyrr. United og fleiri ensk úrvalsdeildarlið eru byrjuð að tala saman um að gefa stuðningsmönnum sínum aftur tækifæri á að kynnast þeirri sérstöku stemmningu sem fylgir því að standa á fótboltaleikjum. Stæði hafa verið bönnuð á leikjum í efstu tveimur deildunum í Englandi eftir Hillsborough-harmleikinn árið 1989 þar sem 96 stuðningsmenn Liverpool krömdust til bana. Svokölluð örugg stæði hafa verið tekin upp hjá bæði Celtic sem og á leikjum í þýsku deildinni. Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa tekið vel í það að létta aðeins á reglunum en helsti gróðinn af slíkum stæðum er að magna upp betri stemmningu á leikjum liðanna. Sum stór félög, eins og til dæmis Everton, eru á móti slíkri breytingu og það þyrfti líka breytingu á landslögum til þess að ná þessu í gegn. Það mun því taka tíma og þarfnast ennfremur samþykki stjórnmálamannanna til að ná þessum breytingum í gegn. Manchester United ákvað að kanna jarðveginn hjá sínu stuðningsfólki og sendi þess vegna 20 spurninga lista til ársmiðahafa sinna. Stuðningsmennirnir voru meðal annars spurðir af því á hvaða þremur stöðum á leikvanginum þeir vildu helst að kæmi stæði. Það er ekki vitað að félag í ensku úrvalsdeildinni hafi sent stuðningsmönnum sínum áður slíkan spurningalista. Það hafa ekki verið nein stæði á Old Trafford síðan árið 1992 en það ár var Stretford End stúkan rifinn. Old Trafford er stærsti leikvangurinn hjá félagi í ensku úrvalsdeildinni en hann tekur 75.635 manns í sæti.
Enski boltinn Mest lesið Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Portúgal - Spánn | Hinsti HM-dans Ronaldo? Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira