Upphitun fyrir leiki dagsins: Árinu lýkur með risaleik | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. desember 2016 10:00
Sjö leikir verða á boðsstólnum í ensku úrvalsdeildinni á síðasta degi ársins. Athygli flestra beinist að síðdegisleiknum þar sem Liverpool og Manchester City mætast. Liðin eru í 2. og 3. sæti deildarinnar og aðeins einu stigi munar á þeim. Bæði lið þurfa á sigri að halda, sérstaklega ef Chelsea vinnur Stoke City fyrr um daginn. Það má búast við áramótabombum á Anfield enda bæði lið afar sóknarsinnuð. Chelsea er með sex stiga forskot á toppnum eftir 12 sigurleiki í röð. Ef Chelsea vinnur Stoke jafnar liðið met Arsenal frá 2002 yfir flesta sigurleiki í röð. Manchester United, sem hefur verið á góðu skriði að undanförnu, tekur á móti Middlesbrough á Old Trafford. United hefur unnið fjóra leiki í röð á meðan Boro hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Swansea City fær Bournemouth í heimsókn á Liberty völlinn. Þetta er fyrsti leikur Swansea eftir að bandaríski knattspyrnustjórinn Bob Bradley var rekinn. Jóhann Berg Guðmundsson og félagar taka á móti Sunderland í gríðarlega mikilvægum leik í botnbaráttunni. Burnley hefur gengið afar vel á heimavelli í vetur og náð í 19 af 20 stigum sínum þar. Englandsmeistarar Leicester City mæta West Ham United sem hefur unnið þrjá leiki í röð. Hamrarnir eru komnir upp í 11. sæti deildarinnar en Refirnir eru í því sextánda. Þá sækir West Brom Southampton heim. Bæði lið töpuðu í síðustu umferð.Leikir dagsins: 15:00 Man Utd - Middlesbrough (sýndur beint á Stöð 2 Sport HD) 15:00 Chelsea - Stoke 15:00 Swansea - Bournemouth 15:00 Burnley - Sunderland 15:00 Leicester - West Ham 15:00 Southampton - West Brom 17:30 Liverpool - Man City (sýndur beint á Stöð 2 Sport HD)
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Fleiri fréttir Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Sjá meira