Erlent

Bresku stúlkubarni rænt

Mannræningjar höfðu í gær þriggja ára gamla breska stúlku á brott með sér úr bifreið í Port Harcourt í sunnanverðri Nígeríu, þar sem olíuiðnaður er mikill og lögleysa hefur verið viðvarandi.



Árásarmennirnir brutu rúðu á bílnum þar sem hann beið í umferðarteppu, að því er fulltrúi úr breska sendiráðinu greindi frá. Breska utanríkisráðuneytið gaf út yfirlýsingu þar sem þess var krafist að stúlkan yrði tafarlaust látin laus, heil á húfi.



Mannrán á útlendingum eru algeng í kring um nígeríska olíuiðnaðinn, en barnsrán þó fátíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×