Erlent

Hrottaleg nauðgun á Palm Beach

Lögreglan telur líklegt að fleiri verði ákærðir
Lögreglan telur líklegt að fleiri verði ákærðir Mynd/ AFP
Tveir unglingar á Palm Beach hafa verið ákærðir fyrir að nauðga konu og neyða 12 ára gamlan son hennar til að taka þátt í nauðguninni. Að sögn lögreglunnar í Palm Beach var bæði móður og syni misþyrmt hrottalega. Hinir ákærðu eru 14 og 16 ára gamlir. Þeir voru í 10 manna hópi sem ruddist inn á heimili konunnar 18. júní siðastliðinn, samkvæmt upplýsingum Reuters fréttastofunnar.

 

Í lögregluskýrslum kemur fram að ókunnur maður hafi barið dyra hjá konunni og beðið um aðstoð vegna þess að hann væri með sprungið dekk á bílnum sínum. Konan og sonurinn hafi farið út til að hjálpa manninum en þar hafi fjöldi vopnaðra drengja setið fyrir þeim. Fórnarlömbin hafi síðan verið neydd inn til sín, þau lamin og svívirt kynferðislega. Annar drengjanna hafi nauðgað konunni. Tólf ára gamall sonur hennar hafi verið neyddur til að taka þátt í árásinni á móður sína og hafa mök við hana fyrir framan ofbeldismennina. Drengnum hafi síðan verið misþyrmt. Ofbeldismennirnir hafi einnig stolið reiðufé og skartgripum af konunni.

 

Lögreglan taldi mögulegt að fleiri yrðu handteknir vegna málsins en gat ekki gefið upp hvort einhverjir aðrir væru grunaðir. Hinir ákærðu voru ósamvinnuþýðir við lögreglu og neituðu aðild að málinu. DNA sýni úr smokki bendir hins vegar til sektar annars þeirra.

 

Fórnarlömbin hlutu ekki lífshættulega áverka vegna málsins og eru þau nú laus af sjúkrahúsi. Þau hafa þegið sálfræðihjálp vegna atviksins.

 

Lögreglan telur að brotamennirnir hafi ekki þekkt fórnarlömbin fyrir árásina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×