Erlent

Marokkó býst við hryðjuverkaárás

Öryggisviðbúnaðarstig Marokkóbúa er á hæsta stigi um þessar mundir.
Öryggisviðbúnaðarstig Marokkóbúa er á hæsta stigi um þessar mundir. Mynd/ Visir.is
Marokkó hefur hækkað öryggisviðbúnað í hæsta stig sem þýðir að vænst sé árásar róttækra islamista bráðlega. Ákvörðun um að auka viðbúnað var tekin eftir fund lögreglustjóra með leyniþjónustu og hervöldum í höfuðborginni Rabat, eftir að þessum aðilum bárust áreiðanlegar leyniþjónustuupplýsingar.

 

Marokkó er vinaþjóð Bandaríkjanna og hefur lýst yfir þátttöku í alheimsstríði gegn hryðjuverkum. Öryggisviðbúnaður hefur verið hár þar síðan 2003 þegar sjálfsmorðsprengja varð 45 manns að bana í Casablanca. Þau voru hækkuð eftir að sjálfsmorðsprengjuárásir voru gerðar í Casablanca í mars og apríl síðastliðnum.

 

Innanríkisráðuneytið í Marokkó hvetur borgara landsins til að vera á verði og taka þátt í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þá sagði ráðuneytið að öryggisviðbúnaðurinn yrði ekki til skamms tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×