Erlent

Uppgjör við öfgaklerka í Pakistan

Kóranskólanemar úr Rauðu moskunni gefast upp fyrir umsátursmönnum í gær. Nærri 1.000 manns voru enn inni í henni.
Kóranskólanemar úr Rauðu moskunni gefast upp fyrir umsátursmönnum í gær. Nærri 1.000 manns voru enn inni í henni. fréttablaðið/ap

Herskár múslimaklerkur, sem pakistanskar öryggissveitir tóku höndum er hann reyndi að flýja dulbúinn í kvennakufl, sagði í gær að hinir nærri því þúsund fylgismenn sínir, sem enn væru í Rauðu moskunni í Íslamabad sem stjórnarherinn hefur nú setið um í tvo daga, ættu að gefast upp eða flýja.



Þessi ummæli klerksins, Maulana Abdul Aziz, jók vonir um að takast mætti að binda enda á umsátrið án þess að til blóðbaðs kæmi. En bróðir Aziz var enn inni í moskunni og hann sagðist ekki sjá neina ástæðu til uppgjafar.

Byssuskothríð og sprengingar heyrðust með reglulegu millibili í kringum moskuna, sem ýmist er kölluð Rauða moskan eða Lal Masjid, í gær.

Að sögn forsvarsmanna umsátursins voru allt að 100 þungvopnaðir bardagamenn meðal fólksins inni í moskunni, sem flest er annars námsmenn af báðum kynjum úr kóranskóla sem tengist moskunni.



Frá því áhlaupið hófst að moskunni á miðvikudag hafa minnst sextán manns fallið, þar af átta bardagamenn íslamista. Umsátrið er liður í uppgjöri ríkisstjórnar Pervez Musharrafs hershöfðingja við Aziz og fylgismenn hans. Aziz hefur barizt fyrir því að sjaríalög íslams yrðu tekin upp í Pakistan, rétt eins og talibanar gerðu í Afganistan.



Síðan í janúar hafa klerkarnir staðið uppi í hárinu á yfirvöldum með því að senda nema sína til að fylla sæti bókasafns í borginni, þjarma að verslunarrekendum sem seja vestrænar bækur og kvikmyndir, og með því að ræna meintum vændiskonum og lögreglumönnum. Allt er þetta gert í nafni „siðaherferðar“ í anda talibana.



Að sögn talsmanna yfirvalda eiga Aziz og bróðir hans, Abdul Rashid Ghazi, yfir höfði sér ákærur í mörgum liðum, þar á meðal fyrir mannrán, að hvetja til manndrápa, brot á vopnalögum og fleira. Konur, börn og aðrir fylgismenn þeirra, sem ekki hefðu gerst sekir um glæpi, yrði sleppt án ákæru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×