Erlent

Níu handteknir vegna árásar

Lögreglan í Jemen hefur handtekið níu menn sem grunaðir eru um aðild að sjálfsmorðsárás á mánudagskvöld þar sem sjö Spánverjar og tveir Jemenar létust. Mennirnir, sem eru allir frá Jemen, voru yfirheyrðir í gær. Talið er að al-Kaída hafi staðið á bak við árásina.



Bíll hlaðinn sprengiefni keyrði á tvo jeppa sem í voru þrettán spænskir ferðamenn. Hinir sex Spánverjarnir særðust í árásinni en aðeins einn þeirra alvarlega. Lík spænsku ferðamannanna voru flutt til Spánar með herflugvél á miðvikudag auk þeirra sem særðust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×