Erlent

Neðanjarðarlest fór af spori

Neðanjarðarlest fór af sporinu á háannatíma í austurhluta London í gær. 37 farþegar slösuðust og voru 11 þeirra fluttir á sjúkrahús.

Flytja þurfti um 900 farþega burt eftir að lestin fór af sporinu, en önnur lest festist fyrir aftan hana í göngunum.



Lögregla rannsakar hvað olli slysinu. Lestarstjórinn segist hafa séð eitthvað hvítt á teinunum, mögulega einhvers konar lak, áður en það lenti á lestinni. Hann hemlaði umsvifalaust og fóru tveir fremstu vagnar lestarinnar út af sporinu. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×