Morata: Ég hefði átt að hætta að spila Dagur Lárusson skrifar 6. maí 2018 12:30 Alvaro Morata. vísir/getty
Alvaro Morata, leikmaður Chelsea, segist sjá eftir því að hafa haldið áfram að spila í vetur þegar hann vissi að hann var að glíma við meiðsli. Eftir að hafa byrjað leiktíðina vel með Chelsea og skorað m.a. þrennu gegn Stoke í október, þá fór Morata í gegnum erfitt tímabil þar sem hann var að glíma við meiðsli í nokkra mánuði og skoraði fyrir vikið ekki mikið af mörkum. Morata hefur nú greint frá því að í langan tíma spilaði hann í raun meiddur. „Þetta hefur verið flókið ár fyrir mig og þetta hefur alls ekki verið besta árið hjá félaginu sjálfu í heild sinni,” sagði Morata í viðtali við Marca. „Ég hef gengnið í gegnum erfiða tíma í ár. Þetta byrjaði allt svo vel, ég var að skora mikið af mörkum og allir elskuðu mig. En þetta er aðeins öðruvísi núna.” „Fólk segir hluti við mig á götum úti, en það veit ekki hvað ég hef gengið í gegnum. Eina manneskjan sem veit það er eiginkona mín.” „Ég hefði frekar viljað togna og verið frá í þrjá mánuði í staðinn fyrir að vita ekki almennilega hvað var að mér. Ég vildi halda áfram að spila og halda áfram að skora, en ég einfaldlega gat það ekki, því ég vissi ekki hvað var að mér.” Morata bætti því við að hann þurfti að fara í nokkur skipti til Þýskalands til þess að fá tímabunda lausn á sársaukanum. „Ég þurfti að fara í nokkur skipti til Þýskalands til þess einfaldlega að fá tímabundna lausn á sársaukanum. Það var mjög vont og síðan þurfti ég að fara strax til baka til London og vera mættur á æfingu daginn eftir. Ég hefði einfaldlega átt að hætta að spila.” Alvaro Morata virðist hafa náð sér að meiðslunum núna og er byrjaður að skora á ný, en hann skoraði meðal annars gegn Southampton í undanúrslitum FA-bikarsins.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Sjá meira