Erlent

31 týndi lífi í aurskriðum

Tony Saca, forseti El Salvador, lýsti yfir neyðarástandi í landinu í fyrradag eftir að 31 maður fórst þar í aurskriðum. Mikil úrkoma hefur verið í landinu síðustu daga og hefur vatnsaginn komið af stað mannskæðum aurskriðum. Yfir 300 sveitarfélög hafa orðið fyrir barðinu á flóðum og skriðuföllum og er mannfall af þeirra völdum á fjórða tuginn. Alls hefur þurft að rýma 8.500 heimili. Ástandið er verst í miðhluta landsins en þar fórust yfir 800 manns í skriðuföllum árið 2001 í kjölfar jarðskjálfta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×