Erlent

Leit hætt að fórnarlömbum

Yfirvöld í Louisiana hafa hætt formlegri leit að fórnarlömbum fellibylsins Katrínar sem reið yfir suðurríki Bandaríkjanna i ágústlok. Opinber tala látinna er 964 en upphaflega var óttast að hátt í tíu þúsund manns hefðu látist í hamförunum. Leit er hins vegar ekki alveg hætt þar sem einkafyrirtæki hefur verið fengið til að leita fólks ef tilkynningar um lík berast yfirvöldum. Lífið í New Orleans er óðum að hverfa í sitt fyrra horf og hafa þúsundir íbúa borgarinnar streymt til hennar undanfarna daga. Auk þess hafa sum fyrirtæki hafið starfsemi á ný en rafmagn og drykkjarvatn er aðeins að fá á nokkrum stöðum í borginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×