Sameinuðu þjóðirnar gagnrýna Íraka 4. október 2005 00:01
Sjíar og Kúrdar á Íraksþingi hafa knúið fram breytingar á kosningalöggjöf landsins svo að nær ómögulegt er að fella drög að stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni 15. október. Sameinuðu þjóðirnar fordæma breytingarnar. Fyrir breytingarnar gerðu lög ráð fyrir að tvo þriðju hluta greiddra atkvæða í þremur héruðuðum þyrfti til að stjórnarskrárdrögin öðluðust ekki gildi. Þegar ljóst var að súnníar, sem leggjast mjög gegn samþykkt þeirra, eru í drjúgum meirihluta í að minnsta kosti þremur héruðum brugðu sjíar og Kúrdar á það ráð að breyta lögunum á þann veg að tvo þriðju hluta atkvæða þeirra sem eru á kjörskrá þarf til að fella plaggið. Þar sem óttast er að margir skráðir kjósendur sitji heima vegna ólgunnar í landinu er nánast öruggt að stjórnarskrárdrögin verði samþykkt en það gæti orðið vatn á myllu uppreisnarmanna. Deilan er sérlega kaldhæðnisleg í ljósi þess að stjórnarskrárferlið átti að lægja öldurnar í landinu, en nú virðist hið gagnstæða hafa orðið ofan á. Jose Aranaz, lögfræðilegur ráðunautur Sameinuðu þjóðanna í Írak segir breytingarnar óásættanlegar og atkvæðagreiðsluna marklausa í augum alþjóðasamfélagsins, en stofnunin á að tryggja að atkvæðagreiðslan fari fram eftir settum reglum.
Erlent Fréttir Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Klukkan tifar og enn langt í land Erlent Fleiri fréttir Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Sjá meira