Erlent

Viðbúnaður vegna fellibylsins Stan

Ekkert lát virðist vera á fellibyljum úti fyrir ströndum Bandaríkjanna, en í dag gekk fellibylurinn Stan inn á Mexíkóflóa með tilheyrandi stormviðri og úrhelli. Þótt Stan sé aðeins flokkaður sem fyrsta stigs fellibylur á Saffir-Simpson kvarðanum, hafa yfirvöld í Mexíkó brugðist við og lokað tveimur af helstu olíuútflutningshöfnum sínum af ótta við að skemmdir verði á olíuvinnslutækjum. Þá hafa 270 verkamenn verið fluttir af fimm olíborpöllum á Mexíkóflóa. Stan gekk yfir Yucatan-skaga í Mexíkó um helgina, þá aðeins sem hitabeltisstormur, og létust alls 35 manns í flóðum og aurskriðum sem fylgdu í kjölfar úrhellis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×