Segir ákveðin tækifæri í stöðunni 18. júlí 2007 04:30 Shimon Peres, forseti Ísraels, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddust við um pólitíska ástandið í Jerúsalem í gær. fréttablaðið/auðunn arnórsson
Eftir viðræður við Shimon Peres, forseta Ísraels, og Tzipi Livni, utanríkisráðherra og varaforsætisráðherra Ísraels, í Jerúsalem í gær segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra að það séu „ákveðin tækifæri“ í stöðunni í deilu Ísraela og Palestínumanna „þótt það kannski líti ekki þannig út“. Formleg dagskrá vinnuheimsóknar Ingibjargar Sólrúnar til Ísraels hófst í gær með heimsókn í helfararminningarsafnið Yad Vashem, en á mánudag fór hún í skoðunarferð að landamærum Ísraels að Líbanon og Sýrlandi. Ingibjörg var fyrsti erlendi ráðamaðurinn sem átti fund með Peres eftir að hann tók við embætti forseta á sunnudaginn og sýndu ísraelskir fjölmiðlar fundinum því talsverðan áhuga. Um fundinn sagði Ingibjörg að það að hitta Peres væri eins og að ganga á vit sögunnar. „Hann hefur verið á hinu pólitíska sviði í 60 ár, eða jafnlengi og Ísraelsríki hefur verið til. Að hitta slíkan mann er auðvitað mjög merkilegt og fá að heyra hans hliðar á málunum.“ Í samtali við Fréttablaðið að loknum fundunum með Peres og Livni sagði Ingibjörg að erindi hennar á þessar slóðir væri að „átta sig á þessum flóknu málum sem hér er um að ræða“. Hún minnti á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segði að hún muni beita sér fyrir friði og mannréttindum í Miðausturlöndum, og því væri hún að framfylgja með heimsókninni. Í viðræðum gærdagsins hefði hún fengið að heyra hvernig þessi mál horfðu við ísraelskum stjórnvöldum. Hina hliðina fengi hún síðar í vikunni á fundum með leiðtogum Palestínumanna. „Þetta hafa verið mjög gagnlegar viðræður. Maður fær miklu skýrari heildarmynd af þeim flóknu úrlausnaratriðum sem hér er að fást við,“ segir Ingibjörg. Hún hafi lært að í stöðunni séu ákveðin tækifæri, „þótt það kannski líti ekki þannig út“. Um fundinn með Livni segir Ingibjörg aðspurð að sér finnist það tvímælalaust skipta máli að þær séu báðar konur. „Það skiptir verulegu máli í okkar samræðum. Það gerir þær auðveldari, opinskáari, hreinskiptnari en þær kannski ella væru.“
Mest lesið „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Erlent Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Innlent Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Innlent Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Innlent Fleiri fréttir Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Sjá meira