Liver­pool hafði betur í fjörugum leik á Brúnni

Mane kemur boltanum í netið eftir mistökin ömurlegu hjá Kepa.
Mane kemur boltanum í netið eftir mistökin ömurlegu hjá Kepa. vísir/getty

Liverpool er með sex stig eftir fyrstu tvo leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en þeir unnu 2-0 útisigur á Chelsea í dag.

Fyrri hálfleikurinn var tíðindalítill, allt þangað til komið var fram í uppbótartímann en þá virtist Sadio Mane vera að sleppa einn í gegn.

Hinn danski Andreas Christiansen, varnarmaður Chelsea, tosaði hann hins vegar niður. Fyrst um sinn fékk hann gult spjald en eftir skoðun í VARsjánni var sá danski sendur í bað.

Chelsea menn því einum manni færri allan síðari hálfleikinn og er sá hálfleikur var níu mínútna gamall höfðu ensku meistararnir gert tvö mörk.

Sadio Mane skoraði fyrra markið á 50. mínútu og Senegalinn var aftur á ferðinni fjórum mínútum síðar eftir ömurleg mistök Kepa í marki Chelsea.

Thiago, sem gekk í raðir Liverpool á dögunum, kom inn á í hálfleik en hann var dæmdur brotlegur innan teigs Liverpool er Timo Werner fór niður.

Alisson varði hins vegar spyrnu Jorginho og lokatölur 2-0. Liverpool með fullt hús eftir sigra á Chelsea og Leeds en Chelsea er með þrjú stigin eftir sigurinn á Brighton um síðustu helgi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira