Enski boltinn

Eggert vill spila í Bandaríkjunum

NordicPhotos/GettyImages

Eggert Magnússon, stjórnarmaður hjá West Ham, segir að það gæti orðið ensku úrvalsdeildinni til framdráttar að spila leiki í Bandaríkjunum.

Bandaríska ruðningsdeildin, NFL, spilaði nýverið opnunarleikinn í deildarkeppninni í London og Eggert sér ekkert því til fyrirstöðu að enskir snúi dæminu við og opni ensku úrvalsdeildina með leik í Bandaríkjunum.

"Ég sé það fyrir mér gerast fyrr en síðar. Ég held að það yrði gott fyrir leikinn," sagði Eggert í samtali við Sky Sports í dag.

Stan Kroenke, hluthafi í Arsenal, tekur í sama streng. "Það eru örugglega ágætar líkur á því að koma á leik vestanhafs ef eigendurnir taka vel í það. Þetta gæti alveg átt sér stað í nánustu framtíð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×