Losaðu þig við Berbatov 25. október 2007 08:55 NordicPhotos/GettyImages
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur skorað á kollega sinn Martin Jol hjá Tottenham að losa sig við framherjann Dimitar Berbatov úr liðinu. Redknapp skrifar reglulega pistla í dagblaðið Sun og hann lætur búlgarska framherjann hafa það óþvegið í nýjasta pistli sínum. "Það síðasta sem Jol þarf núna er að Berbatov fari í fýlu þó hann fái ekki að byrja hvern einasta leik. Maður sér oftast hið sanna innræti manna þegar á móti blæs og hann sat á bekknum gegn Newcastle með fýlusvip eins og stórt smábarn. Allir vita hvað Berbatov getur og hann sýndi það í fyrra þegar hann skoraði grimmt, en hann hefur ekki verið góður í ár og virðist spila fyrir sjálfan sig en ekki liðið. Hugarfar hans á St. James´ Park virtist ekki gott og hann sendi frá sér neikvæð skilaboð," sagði Redknapp og bendir á Robbie Keane sem jákvæða fyrirmynd. "Þegar liðið er í erfiðleikum þarf það á sterkum karakterum að halda og það hefur Robbie Keane gert. Berbatov ætti að sýna sama hugarfar og ég hef alltaf sagt að þegar menn missa hugarfarið eigi þeir að fara - alveg sama hvað þeir eru góðir." Tottenham mætir Getafe á heimavelli í Evrópukeppni félagsliða í kvöld og þá verður gaman að sjá hvort Martin Jol tekur orð Redknapp til greina. Leikurinn er sýndur beint á Sýn klukkan 18:40 í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Íslenski boltinn Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira