Tónlist

Eyfi leggur blessun sína yfir út­gáfu Flóna: „Geysi­lega sáttur við þessa frum­legu út­gáfu“

Sylvía Hall skrifar
Dúett í uppsiglingu?
Dúett í uppsiglingu? Vísir/Vilhelm/Skjáskot

Eyjólfur Kristjánsson, betur þekktur sem Eyfi, hefur lagt blessun sína yfir umdeilt skemmtiatriði í Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi. Tónlistarmaðurinn Flóni steig á stokk og flutti nýja útgáfu af einu ástsælasta lagi þjóðarinnar, Draumur um Nínu, sem var framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1991 og flutti Eyjólfur það ásamt Stefáni Hilmarssyni.

Útgáfa Flóna var verulega frábrugðin þeirri sem landsmenn þekkja. Lagið var sett í nútímalegan búning og laglínan líkari þeim popplögum sem gefin eru út í dag.

Sjá einnig: Skiptar skoðanir um nýstárlegu útgáfu af Nínu í boði Flóna: „HVAÐ ERTU AÐ GERA VIÐ NÍNU?“

Netverjar sátu ekki á skoðunum sínum í gærkvöldi og voru ýmist yfir sig hrifnir eða brjálaðir yfir flutningnum. Poppkóngurinn Páll Óskar lýsti þó yfir ánægju sinni og sagði nýjan súperhittara fæddan. Laglínan væri „gersamlega geðveik“ og þótti honum breytingin þjóna textanum vel.

„Þessi angurværa laglína þjónar nefnilega textanum, skilur inntak hans og dregur fram hvað textinn er í raun sorglegur. Súperhittari er fæddur.“

Geysilega sáttur við frumlega útgáfu 

Eftir heitar umræður um flutninginn á Twitter ákvað höfundur lagsins að stíga fram og segja sína skoðun. Margir höfðu dregið það í efa að hann yrði ánægður með útgáfuna en hann þaggaði niður í þeim röddum með stuttu tísti í dag.



„Vegna umræðu um flutning Flóna á “Draumur um Nínu” í gær, þá vildi ég bara segja sem höfundur lags og texta að ég er geysilega sáttur við þessa frumlegu útgáfu, vel gert,“ skrifaði Eyfi og lét friðartákn fylgja með.

Hér að neðan má sjá atriði Flóna í gærkvöldi.


Tengdar fréttir

#12stig: Fylgstu með söngvakeppninni á Twitter

Eins og venjulega er búist við því að Eurovision-áhugafólk varpi fram skoðunum sínum á frammistöðu keppenda, kynna og jafnvel áhorfenda í tengslum við keppnina. Umræðan undir myllumerkinu #12stig verður því að öllum líkindum lífleg í kvöld eins og hún var fyrir viku síðan.

Daði, Iva og Nína áfram í Söngvakeppninni

Gagnamagnið í flutningi Daða og Gagnamagnsins og Oculis Videre í flutningi Ivu og komust þau áfram í úrslitakeppni Söngvakeppninnar úr seinni undankeppninni fyrir Eurovision 2020. Dómnefnd sendi einnig Ekkó í flutningi Nínu áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×