Erlent

Þjóðarsorg í Belgíu í dag

Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Belgíu í dag vegna rútuslyssins í Sviss sem kostaði 22 börn og sex fullorðna lífið.

Flaggað verður í hálfa stöng um allt landið í dag og klukkan 11 að staðartíma eða klukkan 10 hér heima verður mínútuþögn til að minnast þeirra sem fórust.

Enn er ekki ljóst hvað olli rútuslysinu en hugsanlega er talið að annar bílstjóranna hafi misst stjórn á rútunni þegar hann var að setja hljómdisk í geislaspilara í rútunni augnabliki áður en rútan skall á hliðarvegg í undirgöngum í Valais kantónunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×