Erlent

Fjölmenn mótmæli í Tel Aviv

MYND/AFP
Tugir þúsunda mótmælenda, jafnvel um hundrað þúsund, komu saman í miðborg Tel Aviv í Ísrael nú síðdegis til að krefjast afsagnar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra, vegna stríðsins í Líbanon í fyrra. Svört skýrsla um stríðsreksturinn var rædd á Ísraelsþingi í dag.

 

Þrátt fyrir mikinn þrýsting hefur Olmert neitað að segja af sér og segist hann ætla að fara að tilmælum skýrslunnar. Stjórnmálamenn úr flestum flokkum á ísraelska þinginu taka þátt í mótmælunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×