Erlent

Kosningaaldur niður í 16 ár

Ríkisstjórn Austurríkis ákvað í gær að leggja formlega fram lagafrumvarp, þar sem lagt er til að lágmarksaldur til að kjósa í þingkosningum í landinu verði færður niður í 16 ár.

Verði frumvarpið samþykkt yrði Austurríki fyrsta landið í Evrópu til að lögleiða 16 ára almennan kosningaaldur. Gagnrýnendur segja of geyst farið; lækkun kosningaaldurs þyrfti að fylgja meiri kennsla um þjóðfélagsmál í skólum.

Í frumvarpinu er einnig kveðið á um fleiri kosningatengdar breytingar, svo sem að lengja kjörtímabil þjóðþingsins úr fjórum árum í fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×