Sendiráð Eista njóti verndar 3. maí 2007 01:00 Flutt Minnismerkið komið á nýja staðinn í kirkjugarði í Tallinn. MYND/AP
Erindrekar Evrópusambandsins þrýstu á rússnesk stjórnvöld í gær að sjá til þess að eistneska sendiráðið í Moskvu nyti tilhlýðilegrar verndar, en fjöldi ungra Rússa hefur setið um það síðustu daga og gert aðsúg að starfsmönnum þess, þar á meðal sendiherranum Marinu Kaljurand. Umsátursliðið er reitt þeirri ákvörðun eistneskra stjórnvalda að láta flytja minnismerki um sigur Rauða hersins í síðari heimsstyrjöld frá torgi í miðborg Tallinn inn í kirkjugarð í borginni. Er hafist var handa við að flytja styttuna á föstudaginn kom til átaka milli lögreglu og ungmenna af rússneskumælandi minnihlutanum í Eistlandi. „Við mælumst eindregið til þess að rússnesk stjórnvöld standi við skuldbindingar sínar samkvæmt Vínarsáttmálanum um diplómatísk samskipti,“ sagði Christiane Hohmann, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hún sagði að nefnd sendiherra ESB-ríkja vildi sem fyrst eiga fund í rússneska utanríkisráðuneytinu til að koma þessum skilaboðum á framfæri. Kaljurand sendiherra hafði áður greint frá því að rússnesk ungmenni, sem fylgja núverandi valdhöfum í Kreml að málum, hefðu reynt að ráðast á sig er hún reyndi að halda blaðamannafund í Moskvu. Hún sagði einnig að tölvuþrjótar sem meðal annars notuðu tölvur skráðar af rússnesku ríkisstjórninni hefðu brotist inn á opinberar heimasíður Eistlandsstjórnar. Minnismerkið umdeilda, „Bronshermanninn“, álíta Eistar almennt tákn um sovéskt hernám og ofríki Moskvuvaldsins í hálfa öld í landi þeirra.
Mest lesið „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Innlent Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Erlent Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Innlent Miðflokki fatast flugið Innlent Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Fleiri fréttir Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Sjá meira