Man. Utd á toppinn Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 16. desember 2011 17:06 Rooney fagnar marki sínu sem kom eftir 51 sekúndu.
Manchester United tyllti sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar, tímabundið a.m.k., með því að leggja Heiðar Helguson og félaga í QPR 2-0 á útivelli í bráðfjörugum hádegisleik dagsins. Það tók Manchester United aðeins 51 sekúndu að ná forystunni með marki Wayne Rooney eftir gott samspil við Antonio Valencia. Rooney fann Valencia úti á hægri kanti, Valencia hljóp upp að endamörkum og sendi fyrir þar sem Rooney var mættur til að skalla boltann laglega í markið, óverjandi fyrir Radek Cerny. Þrátt fyrir fjölmörg færi voru ekki fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik. Michael Carrick skoraði seinna mark Man.Utd á 56. mínútu. Carrick komst inn í sendingu Joey Barton á miðjum vellinum og komst óáreittur upp að vítateig þar sem hann lét vaða framhjá Cerny sem hefði getað gert betur í markinu. Heiðar Helguson lék fyrstu 66. mínútur leiksins en hann fékk nokkur fín færi í leiknum sem hann náði ekki að gera sér mat úr. Sigur Man. Utd var síst of stór. Cerny átti frábæran dag í markinu þrátt fyrir að eiga sök í öðru markinu og ramminn á markinu kom QPR þrívegis til bjargar. QPR fékk einnig sín færi í leiknum og hefðu bæði Heiðar Helguson og varamaður hans, DJ Campell átt að gera betur í dauðafærum. Með sigrinum er Manchester United komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar, stigi á undan Manchester City sem mætir Arsenal í dag klukkan 16. QPR er í fimmtánda sæti deildarinnar, þremur stigum frá fallsæti.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira