Enski boltinn

Allardyce þykir líklegastur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sam Allardyce, fyrrum stjóri Newcastle.
Sam Allardyce, fyrrum stjóri Newcastle. Nordic Photos / Getty Images

Sam Allardyce þykir líklegastur til að taka við starfi Roy Keane sem knattspyrnustjóri hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Sunderland.

Keane hætti í gær hjá Sunderland eftir 27 mánuði í starfi en sem stendur er Sunderland í átjánda sæti deildarinnar. „Ég ber mikla fyrir Niall Quinn stjórnarformanni félagsins og því starfi sem hann hefur unnið."

„Sunderland er frábært félag og ég hefði að sjálfsögðu áhuga á starfinu," sagði Allardyce í samtali við enska fjölmiðla.

Fleiri hafa verið orðaðir við starfið, svo sem Phil Brown hjá Hull City, Alan Curbishley, fyrrum stjóri West Ham og Charlton sem og Steve McClaren sem er nú hjá hollenska liðinu Twente.

Allardyce stýrði síðast erkifjendum Sunderland, Newcastle, en hætti þar í janúar á þessu ári. Hann lék á sínum tíma með Sunderland, á árunum 1980 til 1981 er hann kom við sögu í 25 leikjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×