Tónlist

Vök gefur út myndband við lagið In the Dark

Andri Eysteinsson skrifar
Úr nýju myndbandi Vakar.
Úr nýju myndbandi Vakar. VÖK
Nýtt tónlistarmyndband hljómsveitarinnar Vakar við lagið In the Dark, fjallar um að verða skyndilega óstjórnlega kvíðinn á íslenska djamminu, segir Ágúst Elí Ásgeirsson leikstjóri myndbandsins sem er í teiknimyndastíl.

Lagið In the Dark er titillag nýrrar breiðskífu Vakar sem kom út fyrr á árinu. Söngkona sveitarinnar, Margrét Rán Magnúsdóttir segir að hljómsveitin hafi lengi dreymt um að gera teiknimyndarmyndband. „Ég er mikill aðdáandi Gorillaz og mig hefur alltaf dreymt um að gera eitthvað í þeim stíl. Það var ekki fyrr en við kynntumst Ágústi Elí sem við sáum tækifæri til að láta þennan draum rætast,“ segir Margrét Rán.

Ágúst segist hafa reynt að fanga eftir bestu getu unglingaandann í Reykjavík en Margrét segir að myndbandið byggi einnig á myrkfælni sem hún þjáðist af á árum áður. „Ágúst nýtti sér það þegar hann útfærði myndmálið sem fjallar um augnablik á djamminu í Miðborg Reykjavíkur sem margir geta tengt við. Þegar kvíðinn hellist yfir mann er eina svarið að horfast í augu við óttann og um leið horfast í augu við sjálfan sig,“ segir Margrét.

Hljómsveitin Vök kemur fram í Valshöllinni á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves um næstu helgi áður en sveitin heldur í tveggja vikna Evróputúr þar sem að Vök sér um að hita upp fyrir hljómsveitina Of Monsters and Men.

Myndbandið við lagið In the Dark má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Rigndi á Vök

Hljómsveitin Vök hitaði upp fyrir Patti Smith og Duran Duran. Það kom þeim ekki á óvart að vera valin til verksins þar sem þau eiga aðdáendur á öllum aldri og eru ólíkar týpur.

Sjáðu alla listamennina sem koma fram á Iceland Airwaves

Iceland Airwaves hátíðin snýr aftur miðvikudaginn 6. nóvember til laugardags 9. nóvember. Fram koma yfir 130 atriði frá 20 löndum en í dag kom út lokatilkynningin þar sem yfir fimmtíu atriðum var bætt við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×