Alonso hetja Chelsea á Brúnni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Marcos Alonso var hetja Chelsea í dag
Marcos Alonso var hetja Chelsea í dag vísir/getty
Chelsea þurfti að hafa fyrir sigrinum gegn Newcastle á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Lærisveinum Frank Lampard gekk illa að brjóta aftur þétta vörn Newcastle og var það ekki fyrr en á 73. mínútu að Marcos Alonso tókst að brjóta ísinn.

Markið var mjög í takt við gang leiksins, en leikmenn Chelsea höfðu herjað að marki Newcastle áður en markið kom að lokum.

Fleiri urðu mörkin ekki, lokastaðan 1-0.

Sigurinn þýðir að Chelsea fer í þriðja sætið, upp fyrir Manchester City og Arsenal, með 17 stig líkt og Leicester en Refirnir eru með betri markatölu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira