Hetjan á móti Arsenal búinn að fá sinn hund og gaf honum auðvitað þetta nafn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2018 10:30 Eric Lichaj fagnar marki sínu á móti Arsenal. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Nottingham Forest gáfu ekkert eftir í baráttu sinni fyrir að hetja liðsins í bikarleiknum á móti Arsenal fengi ósk sína uppfyllta. Varnarmaðurinn Eric Lichaj skoraði tvö mörk í 4-2 bikarsigri á Arsenal um síðustu helgi en mesta athygli vakti samkomulag hans við eiginkonuna sína. Eric Lichaj hafði dreymt um að fá hund á heimilið en kona hans Kathryn tók það ekki í mál. Hún var þó tilbúin að lofa honum að segja já við hundi ef hann næði að skora þrennu. Kathryn taldi sig vera nokkuð örugga um að þurfa ekki að efna það loforð enda er Eric varnarmaður og ekki beint líklegur til að skora þrennu. Eric vantaði hinsvegar „aðeins“ eitt mark til að ná því um síðustu helgi og stuðningsmenn Nottingham Forest settu í kjölfarið mikla pressu á Kathryn að verða við ósk eiginmannsins. Samfélagsmiðlar Kathryn fylltust meðal annars af hundamyndum og hún lét loksins undan pressunni. Eric Lichaj birti stoltur mynd af sér með nýja hundinum á Twitter og sagði að hann væri búinn að gefa honum nafnið Gunner. Nafnið hlýtur að vera bein skýrskotun í gælunafn leikmanna Arsenal sem eru kallaðir „Gunners“ eða Skytturnar. Það var nefnilega þessum leik á móti Arsenal að þakka að Gunner hleypur nú um gólfið á heimili þeirra Eric og Kathryn Lichaj. Eric þakkaði jafnframt öllum fyrir það að hjálpa sér við að sannfæra Kathryn um að hleypa hundi inn á heimilið.Wanted to show everyone the newest member of the Lichaj family.... Gunner. Thank you everyone for for pushing @KatPerko in the right direction! #erichasadogpic.twitter.com/SoTKiYiVMR — Eric Lichaj (@EricLichaj) January 9, 2018 Hér fyrir neðan má sjá stóran hluta herferðinnar inn á Twitter. #GetEricADog Tweets
Enski boltinn Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Argentína - Austurríki | Messi gæti slegið metið Fótbolti Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Fótbolti Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Sjá meira