Souness segir að City þurfi að eyða peningum í sumar Anton Ingi Leifsson skrifar 7. maí 2018 17:45 Souness segir að City þurfi að eyða og er viss um að þeir geri það. vísir/getty
Greame Souness, fyrrum leikmaður og þjálfari Liverpool, segir að Englandsmeistarar Manchester City verði að eyða peningum í sumar ætli liðið að halda sér á toppnum í ensku úrvalsdeildinni. City fékk Englandsmeistaratitilinn afhentan í gær eftir markalaust jafntefli gegn Huddersfield á Etihad-leikvanginum en þeir urðu meistarar í síðasta mánuði. „Núna er tími til þess að styrkja liðið. Það er enginn vafi á því að þeir munu styrkja sig. Þeir eru bestir núna og stigasöfnunin segir það,” sagði Souness og kom með skemmtilega sögu frá sínum tíma sem leikmaður: „Ég man eftir þegar Bob Paisley þjálfaði okkur hjá Liverpool. Við unnum Evrópubikarinn og deildina en hann var ekki sáttur. Hann fór og reyndi að finna einhvern til að koma inn. Þetta er besti tíminn til þess að gera þetta þegar þú ert á toppnum.” City hefur unnið 31 leik á tímabilinu af þeim 36 sem liðið hefur spilað en liðið getur bætt met með að vinna annan af leikjunum sem liðið á eftir. „Stuðningsmennirnir eru að lifa drauminn. City var lengi vel félag sem var jójó-lið og svo skiptu þeir um eigendur. Núna eru þeir með lið sem er að berjast við öll stóru félögin.” „Sumir þessara stuðningsmanna hafa væntanlega upplifað slæmu tímana einnig og þeir trúa ekki því sem þeir eru að sjá. Þeir eru liðið sem önnur lið verða að ná og þú munt bara sjá þá styrkjast í sumar.”
Fótbolti Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjá meira