Butland brjálaður og segir kaup Stoke farsakennd Anton Ingi Leifsson skrifar 7. maí 2018 17:00 Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Butland eftir að Stoke féll niður um deild. vísir/getty
Jack Butland, markvörður Stoke City, er allt annað en sáttur með innkaupastefnu félagsins. Stoke féll niður í ensku B-deildina eftir tap um helgina. Tap gegn Crystal Palace á laugardaginn gerði það að verkum að Stoke mun ekki geta bjargað sér í lokaumferðinni sem fer fram um næstu helgi og mun því leika í B-deildinni á næstu leiktíð. Enski markvörðurinn er ekki sáttur við framgöngu félagsins á leikmannamarkaðinum og segir að kaupin á markaðnum hafi verið farsi; liðið hafi keypt leikmenn sem ekki hafi verið hægt að stóla á. „Allir sem taka þátt í ferlinu á kaup á nýjum leikmanni þurfa að líta inn á við. Það hafa verið gerð kaup á leikmönnum sem eru ekki hluti af hópnum af mörgum ástæðum; hvort það sem eru agavandamál eða slök frammistaða,” sagði Butland. Stoke fékk framherjann Jese Rodriguez fyrir tímabilið sem skoraði eitt mark í 13 leikjum áður en hann lét sig hverfa í launalaust leyfi. Saido Berahino kom frá West Ham og hefur spilað ellefu leiki síðan 2017. Sagan er ekki öll. Kevin Wimmer, lofandi varnarmaður frá Tottenham, var keyptur fyrir 18 milljónir síðasta sumar en æfir nú með varaliðinu og enn ein kaupin, Giannelli Imbula, miðjumaður sem kostaði 18 milljónir hefur eytt tímabilinu á láni í Frakklandi. Butland hefur fengið nóg. „Þú verður að skoða það hvaða ákvarðanir er verið að taka og hvernig týpur þú ert að fá. Of margar ákvarðanir á leikmannamarkaðnum undanfarin ár eru óásættanlegar.” „Svo áður en einhver nýr verður fenginn inn eða einhverjar breytingar verða gerðar þarf að fara vel yfir þetta því þetta er í rauninni bara farsi,” sagði brjálaður Butland að lokum. Markvörðurinn er í harðri baráttu um að komast á HM með Englandi í sumar en hann er í baráttunni við Nick Pope, Ben Foster, Joe Hart og Jordan Pickford um að verða markvörður númer eitt hjá Englandi í sumar.
Fótbolti Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir Handbolti „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ Sport Fleiri fréttir Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk „Hann var grátandi í hálfleik“ „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ Sjá meira