Zlatan: Tók mig aðeins þrjá mánuði að taka yfir England Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. janúar 2017 10:30 Zlatan Ibrahimovic er næst markahæstur í ensku úrvalsdeildinni. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, segist vera búinn að taka yfir, eða hertaka, ensku úrvalsdeildina og ná því markmiði sem hann setti sér; að sanna gæði sín í erfiðustu deild heims. Þetta tók hann aðeins þrjá mánuði. Zlatan, sem er búinn að skora sjö mörk í síðustu átta deildarleikjum og þrettán mörk í heildina í úrvalsdeildinni, missti af fyrri leik United gegn Hull í undanúrslitum deildabikarsins sem liðið vann, 2-0. Hann var veikur og sat á bekknum allan tímann. Búist er við að Svíinn snúi aftur á sunnudaginn þegar erkifjendurnir Manchester United og Liverpool mætast öðru sinni á leiktíðinni en Zlatan getur náð Diego Costa á toppi markalistans með marki á Old Trafford. Hann er þó ekki í neinu kapphlaupi um markakóngstitilinn. „Ég er ekki að elta neinn einstakling. Ég er að elta aðal bikarinn sem maður fær fyrir að vinna ensku úrvalsdeildina. Það er mitt markmið. Viðurkenningar fyrir einstaklingsafrek koma sjálfkrafa þegar stóra markmiðið næst. Það er eins og bónus fyrir leikmanninn,“ segir Zlatan í viðtali við heimasíðu Manchester United. „Ef heildinni gengur vel gengur einstaklingunum vel. Ég reyni að hjálpa liðinu með því að skora. Ég er bestur í því. Ég reyni að spila vel og leggja upp færi fyrir liðsfélaga mína. Á meðan ég geri það er veit ég að ég er að hjálpa liðinu.“ „Það er eins með hina í liðinu. Þeir hjálpa mér að hjálpa liðinu. Ég er ekki með nein einstaklingsmarkmið á Englandi því ég náði þeim á þremur mánuðum. Ég tók yfir [e.conquered] England og það tók mig bara þrjá mánuði,“ segir Zlatan Ibrahimovic.
Enski boltinn Mest lesið Magnús Eyjólfsson er látinn Sport Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Enski boltinn Segir slagsmálin í klefanum hafa verið ofbeldisfull og ofsafenginn Fótbolti Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti Grófu sig undir girðingu og stálu milljónum frá félaginu Fótbolti „Lukkudýrið“ í mál við félagið Körfubolti ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Körfubolti „Djöfull er gaman að vinna loksins aftur“ Fótbolti Stjarnan er meistari meistaranna Handbolti Logi og Albert skoruðu báðir í Evrópu í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz „Skilyrði félagsins fyrir sölu hafa ekki verið uppfyllt“ Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Liverpool búið að selja leikmenn fyrir meira en 33 milljarða í sumar Pep Guardiola hjálpar Ten Hag Isak rýfur þögnina og segir Newcastle hafa svikið loforð Völdu Mo Salah bestan en Chris Wood frekar en Haaland í lið ársins Sóla ekki skemmt yfir Owen-treyju: „Vil ekki sjá hana“ Eze fari til Spurs fyrir vikulok Sjáðu mark Chiesa frá öllum vinklum og öll hin mörkin Isak skrópar á verðlaunahátíð Úlfarnir kaupa hraðasta leikmann Ítalíu Klárlega búið að vanmeta Man. City Chiesa núna ákveðinn í að vera áfram hjá Liverpool Sjá meira