Þrjú rauð, útileikmaður í markið og Gerrard var í Everton síðast þegar að það vann á Anfield Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. desember 2017 09:45 Steven Gerrard kom inn á fyrir Liverpool og fékk rautt en nafni hans varði mark Everton. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson spilar í sínum fyrsta Merseyside-nágrannaslag þegar að Everton heimsækir Liverpool á Anfield á sunnudaginn en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Það er undir Gylfa og félögum komið að snúa við gengi Everton í þessum hatramma borgarslag en Everton hefur ekki unnið deildarleik á móti Liverpool síðan í október árið 2010 þegar að Tim Cahill og Mikel Arteta skoruðu mörkin í 2-0 sigri á Goodison Park. Liverpool er búið að vinna sjö af síðustu af síðustu fjórtán leikjum liðanna og hinir sjö hafa endað með jafntefli. Ef farið er svo aðeins lengra til baka má nefna að í síðustu 24 leikjum liðanna hefur Liverpool unnið tólf, Everton aðeins tvo og þá hafa liðin níu sinnum skilið jöfn.Byrjunarliðin í leiknum.mynd/11v11.comGengi Everton á Anfield er alveg ótrúlega slakt en liðið hefur ekki unnið borgarslaginn í Liverpool á útivelli síðan 27. september árið 1999 eða í rúm 18 ár. Kevin Campbell skoraði þá eina markið strax á fjórðu mínútu í rosalegum leik þar sem þrír leikmenn fengu rautt. Það er svo langt síðan að Everton vann á Anfield að þennan ágæta dag voru stormsenterarnir Robbie Fowler og Michael Owen báðir í byrjunarliði Liverpool en Steven Gerrard var á bekknum. Hann kom aftur á móti inn á og fékk rautt spjald. Það var aftur á móti einn Gerrard í byrjunarliði en það var Paul Gerrard, markvörður Everton. Hann átti stórleik og hélst inn á vellinum allan tímann. Sömu sögu er ekki hægt að segja um hollenska markvörðinn Sander Westerveld sem fékk rautt í liði Liverpool. Hann og Francis Jeffers, framherji Everton, fóru í slag og voru báðir sendir í sturtu. Steve Staunton tók hanskana og kláraði leikinn í marki Liverpool. Nú eru 18 ár liðin og Liverpool hefur ekki enn þá þurft að sætta sig við deildartap á heimavelli gegn Everton en spurningin er hvort Gylfi Þór Sigurðsson verði örlagavaldur á sunnudaginn þegar að fyrri Merseyside-slagur tímabilsins fer fram. Brot úr þessum magnaða leikf yrir 18 árum má sjá hér að neðan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Stóri Sam fær íþróttasálfræðing til að hjálpa Gylfa Nýi knattspyrnustjórinn segir að Gylfi eigi erfitt með að ráða við pressuna hjá stærra liði. 4. desember 2017 07:30 „Engin spurning um að Gylfi er einn besti miðjumaður úrvalsdeildarinnar“ Eru stuðningsmenn Everton að fara að sjá hinn raunverulega Gylfa Þór Sigurðsson. 5. desember 2017 08:30 Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira
Stóri Sam fær íþróttasálfræðing til að hjálpa Gylfa Nýi knattspyrnustjórinn segir að Gylfi eigi erfitt með að ráða við pressuna hjá stærra liði. 4. desember 2017 07:30
„Engin spurning um að Gylfi er einn besti miðjumaður úrvalsdeildarinnar“ Eru stuðningsmenn Everton að fara að sjá hinn raunverulega Gylfa Þór Sigurðsson. 5. desember 2017 08:30