Þessa leikmenn ættu bestu liðin í enska boltanum að nota meira Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2017 14:30 Marcos Alonso og Victor Moses Vísir/Getty
Bestu liðunum í ensku úrvalsdeildinni gengur best þegar þessir leikmenn fá sæti í byrjunarliðinu. Stjórarnir ættu að vera með þessa tölfræði á hreinu. Frammistaða leikmanna kemur verður aldrei fullmetin út frá tölfræðinni en góð vísbending um mikilvægi leikmanna er hvernig liðinu gengur í þeim leikjum sem viðkomandi leikmaður byrjar inná.Samantekt Sky Sports á sigurhlutfalli leikmanna bestu liðanna gæti komið sér vel fyrir knattspyrnustjórana og nú er spurning hvort eftirtaldir kappar fá jafnvel enn fleiri tækifæri á næstu vikum. Eitt athyglisverðasta nafnið er Bacary Sagna, hægri bakvörður Manchester City liðsins. City hefur nefnilega náð í 2,7 stig að meðaltali í þeim tíu leikjum sem hann hefur spilað á leiktíðinni en hefur jafnframt fengið aðeins 1,5 stig að meðaltali í þeim tíu leikjum sem Sagna hefur verið fjarverandi. Tveir leikmenn Chelsea eru nánast jafnir á toppnum en það eru þeir Marcos Alonso (2,6 stig í leik) og Victor Moses (2,58 stig í leik). Þegar þeir eru síðan báðir að spila þá hefur Chelsea-liðið náð í 2,79 stig að meðaltali, unnið þrettán og tapað aðeins einum. Þegar þeir eru hvorugir með hefur Chelsea síðan aðeins fengið 1,67 stig að meðaltali í leik. Michael Carrick er efstur hjá Manchester United liðinu enda hefur liðið ekki tapað með hann innanborðs. United hefur fengið 2,56 stig að meðaltali í þeim leikjum sem hann hefur spilað en aðeins 1,45 stig að meðaltali í leikjum án hans. Liverpool-maðurinn Joel Matip er einnig taplaus á tímabilinu. Liverpool hefur unnið átta og gert fjögur jafntefli í þeim tólf leikjum sem hann hefur spilað. Shkodran Mustafi er sá þriðji sem er taplaus en Arsenal hefur náð í 2,38 stig að meðaltali í þeim þrettán leikjum sem hann hefur spilað (9 sigrar og 4 jafntefli). Toby Alderweireld (2,25 stig í leik) er síðan efstur hjá Tottenham-liðinu. Efstu menn hjá öðrum liðum eru sem dæmi Federico Fernandez hjá Swansea, Junior Stanislas hjá Bournemouth, Leighton Baines hjá Everton, James Morrison hjá West Brom og Aaron Cresswell hjá West Ham svo einhverjir séu nefndir. Það má finna meira um þessa úttekt Sky Sports með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Íslenski boltinn Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Fótbolti KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Sjá meira