Moyes ætti enn þá hálft annað ár eftir af samningnum við United Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. nóvember 2017 13:00 Já, lífið er ekki alltaf dans á rósum. vísir/getty
Skoski knattspyrnustjórinn David Moyes sneri aftur í ensku úrvalsdeildina í gær þegar að hann var ráðinn til West Ham sem eftirmaður Króatans Slavens Bilic. Moyes var síðast með Sunderland í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann sagði upp störfum þar eftir að falla með liðið. Það var í fyrsta sinn sem Moyes féll með lið á ferlinum. West Ham er þriðja liðið sem hann tekur við síðan hann var rekinn eftir tæpt eitt tímabil sem knattspyrnustjóri Manchester United en hann stýrði Real Sociedad á Spáni í eitt ár frá 2014-2015 og svo Sunderland á síðustu leiktíð. Það skondna í þessu er að Moyes ætti enn eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Manchester United hefði allt gengið upp á Old Trafford. Skotinn gerði sex ára samning þegar hann var „The chosen one“ og tók við United af sjálfum Sir Alex Ferguson. Allt hefur gengið á afturfótunum hjá Moyes síðan hann lét af störfum hjá Everton sumarið 2013 og tók við Manchester United. Hann byrjaði á því að láta reka sig frá United og eftir það fóru hlutirnir úr öskunni í eldinn. Hann vann aðeins tólf leiki af 42 með Sociedad og var með 28,5 prósent sigurhlutfall en bætti um betur hjá Sunderland þar sem hann vann aðeins átta leiki af 43 og var með 19 prósent sigurhlutfall. Moyes tekur við West Ham í fallsæti og er ætlað að snúa við gengi Hamranna.Moyes signed contract at Man. Utd. until 2019. In that time he's managed them, Real Sociedad, Sunderland & now West Ham - with a year left.— Phil McNulty (@philmcnulty) November 7, 2017
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira