Afríkusambandið segir allt benda til valdaráns í Simbabve Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 15. nóvember 2017 23:05 Sibusiso Moyo flutti þjóðinni ávarp í nótt. Skjáskot
Afríkusambandið segir að yfirtaka hersins á völdum í Simbabve virðist vera valdarán. Herinn hefur neitað að um valdarán sé að ræða og segir að Robert Mugabe, forseti Simbabve frá árinu 1980, sé óhultur og að herinn ætli einungis að herja á glæpamenn. Alpha Conde, forseti Gíneu og formaður Afríkusambandsins, segir sambandið krefjast þess að horfið verði til hins gamla stjórnarfars hið snarasta. Hann segir augljóst að simbabveskir hermenn hafi reynt að taka völd í landinu. Afríkusambandið hefur lýst yfir áhyggjum af ástandinu og hefur undirstrikað stuðning sinn við stjórnvöld í landinu. Mikil spenna hefur verið í landinu frá því að Mugabe rak í byrjun mánaðar varaforsetann og bandamann sinn til margra ára, Emmerson Mnangagwa, úr embætti. Talið er að hinn 93 ára Mugabe hafi með brottrekstri Mnangagwa reynt að greiða leið eiginkonu sinnar, hinnar 52 ára Grace Mugabe, þannig að hún gæti tekið við völdum í landinu síðar meir. Grace Mugabe hefur nú flúið land. Herinn í Simbabve tók í nótt yfir ríkisfjölmiðil landsins og hafa heyrst skothljóð og sprengingar í höfuðborginni Harare. Hershöfðingi birtist á skjám Simbabvemanna þar sem hann fullyrti að valdarán standi ekki yfir og að forsetinn og fjölskylda hans væri örugg.
Tengdar fréttir Mugabe í haldi og sagður ætla að segja af sér Forseti Simbabve er nú í haldi en er heill á húfi að því er fram kemur á Twitter-síðu valdaflokksins Zanu PF. 15. nóvember 2017 08:27 Segja yfirtökuna ekki vera valdarán Her Zimbabve segir að þrátt fyrir að hann hafi tekið yfir ríkisútvarp landsins sé ekki um valdaránstilraun að ræða. 15. nóvember 2017 06:58 „Krókódíllinn“ nær völdum í Simbabve með aðstoð hersins Stjórnarflokkurinn í Simbabve hefur greint frá því að Emmerson Mnangagwa hafi tekið við embætti forseta landsins til bráðabirgða eftir að herinn setti Robert Mugabe í stofufangelsi. 15. nóvember 2017 13:26 Íslendingar í Simbabve beðnir um að láta vita af sér Utanríkisráðuneytið biður Íslendinga sem kunna að vera í Zimbabwe að láta ættingja og vini vita af sér. 15. nóvember 2017 20:32 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira
Mugabe í haldi og sagður ætla að segja af sér Forseti Simbabve er nú í haldi en er heill á húfi að því er fram kemur á Twitter-síðu valdaflokksins Zanu PF. 15. nóvember 2017 08:27
Segja yfirtökuna ekki vera valdarán Her Zimbabve segir að þrátt fyrir að hann hafi tekið yfir ríkisútvarp landsins sé ekki um valdaránstilraun að ræða. 15. nóvember 2017 06:58
„Krókódíllinn“ nær völdum í Simbabve með aðstoð hersins Stjórnarflokkurinn í Simbabve hefur greint frá því að Emmerson Mnangagwa hafi tekið við embætti forseta landsins til bráðabirgða eftir að herinn setti Robert Mugabe í stofufangelsi. 15. nóvember 2017 13:26
Íslendingar í Simbabve beðnir um að láta vita af sér Utanríkisráðuneytið biður Íslendinga sem kunna að vera í Zimbabwe að láta ættingja og vini vita af sér. 15. nóvember 2017 20:32
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent