Léttur sigur Manchester City á Tottenham Hotspur í Bandaríkjunum Elías Orri Njarðarson skrifar 30. júlí 2017 00:18
Kyle Walker var frábær í leiknum í kvöld á móti sínum gömlu félögumvisir/getty Manchester City vann Tottenham Hotspur, 3-0, í ICC bikarnum í Tennesee í Bandaríkjunum í kvöld. Bæði lið stilltu upp sterkum byrjunarliðum en Kyle Walker, einn af nýju leikmönnum City, mætti sínum gömlu félögum í kvöld. Tottenham stillti upp í þriggja manna vörn og byrjaðu þeir leikinn af krafti og á fyrstu mínútum var eins og að leikmenn Manchester City væru ekki mættir á völlinn. En það átti heldur betur eftir að breytast. Á 9. mínútu fengu Manchester City aukaspyrnu sem Kevin de Bruyne tók og hann spyrnti boltanum beint á höfuðið á John Stones, varnarmann City, sem skallaði boltann í marki. City komnir 1-0 yfir og leikmenn Tottenham voru slegnir af laginu. Strax eftir markið lá lið City á Tottenham og þeir ljósbláu svoleiðis óðu í færum. Mikil harka var í leiknum en dómari leiksins var ekki mikið fyrir að vera að blása í flautuna, sem pirraði leikmenn beggja liða. Þriggja manna varnarlína Tottenham var eins og gatasigti í leiknum en leikmenn City áttu í engum vandræðum með að finna leiðir í gegnum vörn Lundúnarliðsins. Harry Kane fékk frábært færi til þess að jafna metin rétt undir lok fyrri hálfleiks en skot hans fór hátt yfir eftir að enski framherjinn hafði sloppið í gegnum vörn City. Manchester City fór með 1-0 forskot inn í síðari hálfleikinn en ótrúlegt var að þeir ljósbláklæddu voru ekki að vinna leikinn með allavega þriggja marka forskoti. Síðari hálfleikurinn hófst eins og sá fyrri endaði, Manchester City sóttu á þriggja manna vörn Tottenham - sem var í molum. Sergio Aguero kom inn á í seinni hálfleiknum ásamt fleiri stórstjörnum sem sátu á varamannabekk City eftir 60. mínútna leik. Argentíski framherjinn var ekki lengi að koma sér í færi en rúmlega einni mínútu eftir að hann kom inn á, fékk hann frábæra fyrirgjöf frá Raheem Sterling en skallaði boltann rétt yfir. Aguero var svo aftur á ferðinni þegar að hann var allt í einu einn á móti Toby Alderweireld, varnarmanni Tottenham og Michel Vorm í marki Tottenham. Hann gerði vel að snúa á Alderweireld en skot hans hafnaði í stönginni. Stórhætta á ferð. Á 72. mínútu kom svo loksins annað mark City en þar var á ferðinni Raheem Sterling sem kláraði vel eftir að hafa sprett í gegnum vörn Tottenham. Brahim Diaz, sem hafði komið inn á sem varamaður hjá City, skoraði svo þriðja mark liðsins í uppbótartíma og gerði algjörlega út um leikinn. Flottur 3-0 sigur Manchester City á vægast sagt mjög slöku Tottenham liði í Tennesee í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira