Fjórði úrslitaleikurinn hjá ensku unglingalandsliði í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2017 17:30 Lukas Nmecha fagnar marki með enska unglingalandsliðinu. Vísir/Getty
Sumarið 2016 var ekki gott fyrir enska landsliðið í fótbolta enda enginn okkar búin að gleyma því þegar íslenska landsliðið sendi þá ensku heim af EM með skottið á milli lappanna. Englendingar voru ekki stoltir af landsliðum sínum fyrir ári en árið 2017 gefur fulla ástæðu til mikillar bjartsýni. Það er nefnilega eins og næstum því allt gangi upp hjá enskum yngri landsliðinu þetta sumarið. Hælspyrna á þriðju mínútu í uppbótartíma tryggði enska 19 ára landsliði Englendinga sæti í úrslitaleik EM U-19. Lukas Nmecha, leikmaður Manchester City, skoraði eina markið í undanúrslitaleik Englands og Tékklands. Með því tryggði hann enska 19 ára landsliðinu sæti í úrslitaleiknum á móti Portúgal. Portúgal vann 1-0 sigur á Hollandi í hinum undanúrslitaleiknum. Það verður fjórði úrslitaleikurinn hjá ensku unglingalandsliði í ár. 20 ára landsliðið vann HM U-20 eftir 1-0 sigur á Venesúela í úrslitaleik. Enska liðið vann einnig Toulon-mótið í júní og 17 ára landsliðið komast alla leið í úrslitaleikinn á EM U-17. Til viðbótar við alla þessa úrslitaleiki þá komst 21 árs landsliðið í undanúrslitaleik á HM U-21 en varð þá að sætta sig við tap í vítakeppni á móti Þýskalandi. Enska 19 ára landsliðið hefur tvisvar áður komist í úrslitaleik á EM U-19 en enskir urðu að sætta sig við tap í bæði hin skiptin, fyrst 2005 á móti Frökkum og svo 2009 á móti Úkraínu. Það kemur í ljós um helgina hvort liðið bætir Evrópumeistaratitli við heimsmeistaratitilinn sem 20 ára liðið vann í Suður-Kóreu á dögunum.
Enski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir Nýi Liverpool-maðurinn raðar áfram inn mörkum og Englendingar í úrslitaleikinn Enska tuttugu ára landsliðið komst í dag í úrslitaleikinn á heimsmeistaramóti U20 í Suður-Kóreu eftir 3-1 sigur á Ítalíu í undanúrslitaleiknum. 8. júní 2017 13:06 Everton-maður tryggði Englandi fyrsta HM-titilinn frá 1966 Enska tuttugu ára landsliðið í fótbolta tryggði sér í dag heimsmeistaratitilinn í U20 eftir 1-0 sigur á Venesúela í úrslitaleik heimsmeistaramótsins sem fór fram í Suður-Kóreu. Sumarið 2017 ætlar að verða miklu betra en sumarið 2016. 11. júní 2017 11:58 Valinn bestur á HM og spilar með Liverpool á næstu leiktíð Dominic Solanke varð í dag heimsmeistari með 20 ára landsliði Englendinga en hann fékk líka Gullboltann sem besti leikmaður keppninnar. 11. júní 2017 12:45 Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Handbolti EM í dag: Stóra Hauks Þrastar leiknum fagnað með pylsuveislu Handbolti Í beinni: Real Sociedad - Barcelona | Án Orra reyna þeir að skáka Börsungum Fótbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Fleiri fréttir Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Sjá meira
Nýi Liverpool-maðurinn raðar áfram inn mörkum og Englendingar í úrslitaleikinn Enska tuttugu ára landsliðið komst í dag í úrslitaleikinn á heimsmeistaramóti U20 í Suður-Kóreu eftir 3-1 sigur á Ítalíu í undanúrslitaleiknum. 8. júní 2017 13:06
Everton-maður tryggði Englandi fyrsta HM-titilinn frá 1966 Enska tuttugu ára landsliðið í fótbolta tryggði sér í dag heimsmeistaratitilinn í U20 eftir 1-0 sigur á Venesúela í úrslitaleik heimsmeistaramótsins sem fór fram í Suður-Kóreu. Sumarið 2017 ætlar að verða miklu betra en sumarið 2016. 11. júní 2017 11:58
Valinn bestur á HM og spilar með Liverpool á næstu leiktíð Dominic Solanke varð í dag heimsmeistari með 20 ára landsliði Englendinga en hann fékk líka Gullboltann sem besti leikmaður keppninnar. 11. júní 2017 12:45