Þó líði ár og öld er alltaf séns Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. febrúar 2017 07:30 Gleðin var mikil hjá utandeildarliði Lincoln eftir að það lagði Burnley að velli í bikarnum. Næst er það leikur á móti Arsenal eða Sutton. vísir/Getty
Í fótboltaheimi sem verður nær alltaf fyrirsjáanlegri og þeir sem borga mest - vinna mest hefur enska bikarkeppnin þessa leiktíðina verið sem ferskur andvari. Leicester auðvitað sýndi að rómantíkin lifir í fótboltanum á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni en nú er það utandeildarlið Lincoln sem er söguhetjan í nýju bikarævintýri. Rauðu imparnir, eins og liðið er kallað, sem er á toppnum í utandeildinni, gerði sér lítið fyrir og lagði Jóhann Berg Guðmundsson og félaga í úrvalsdeildarliði Burnley í 16 liða úrslitum enska bikarsins um liðna helgi. Lincoln varð með því fyrsta utandeildarliðið sem kemst í átta liða úrslit þessarar elstu og virtustu bikarkeppni heims í heil 103 ár. Þetta er einnig í fyrsta sinn í 133 ára sögu félagsins sem það kemst svona langt í bikarnum. Bikarævintýri Lincoln hefur verið svakalegt en liðið er búið að vinna tvö lið úr B-deildinni á leið sinni í átta liða úrslitin áður en kom að sigrinum gegn Burnley sem er heilum 81 sætum fyrir ofan utandeildaliðið á Englandi og með þriðja besta heimavallarárangurinn í ensku úrvalsdeildinni. Í síðustu umferð vann það Brighton örugglega, 3-1, en það er toppliðið í næst efstu deild enska boltans.Þarna undir liggur markaskorarinn og hetja Lincoln City.vísir/getty„Landsliðsmaður“ skoraði Lincoln var síst lakari aðilinn í leiknum en eina markið skorað Sean Raggett undir lokin. Raggett er 23 ára gamall varnarmaður sem kom til Lincoln frá Dover fyrir tímabilið. Hann var fyrir tveimur árum kallaður í enska landsliðið. Ekki alvöru enska landsliðið heldur enska C-liðið sem er utandeildarlið Englands. Það eru alltaf margar svona skemmtilegar sögu í kringum þessi utandeildarlið sem ná árangri í bikarnum. Oftar en ekki eru smiðir og píparar í bakverðinum en Lincoln er reyndar lið sem ætlar sér stóra hluti á næstu árum og er á toppnum í utandeildinni á leið aftur inn í enska deildarkerfið. Knattspyrnustjóri liðsins, Danny Cowley, er þó ekki einu sinni með Wikipedia-síðu. „Það þarf fótboltakraftaverk fyrir utandeildarlið að komast í átta liða úrslitin. Strákarnir voru frábærir. Við erum alltaf raunsæir. Ég myndi aldrei biðja strákana um að gera eitthvað sem þeir ráða ekki við en þeir fylgdu leikáætluninni og við gáfum Burnley alvöru leik,“ sagði sigurreifur Cowley við enska miðla eftir leikinn.Danny Cowley fær kannski að stýra sínum mönnum á móti Arsenal.vísir/gettyAldrei skipt máli Lincoln er smálið sem hefur aldrei skipt máli í enska boltanum. Það náði sínuma besta árangri í sögunni árið 1902 þegar það hafnaði í öðru sæti næst efstu deildar en það hefur ekki komist ofar en í C-deildina síðan árið 1961. Lincoln er það lið sem hefur eytt flestum leiktíðum í utandeildinni eða 104 og á flest föll að baki úr ensku deildakeppninni eða fimm. Þá er verið að tala um fall úr D-deild og niður í utandeildina. Síðast féll liðið árið 2011 og hefur verið í utandeildinni síðan þá. Nú skiptir Lincoln heldur betur máli og sviðsljósið beinist að þessum bikarhetjum sem fá Arsenal í næstu umferð fari lærisveinar Arsene Wenger í gegnum hitt utandeildarliðið, Sutton, í kvöld. Það gæti reynst of stór biti fyrir Lincoln-menn en það héldu nú eflaust flestir líka þegar þeir mættu á Turf Moor.Zlatan fagnar sigurmarki sínu.vísir/gettyZlatan skorar og skorar Manchester United tapar helst ekki leik þessa dagana og komst í átta liða úrslitin þegar liðið lagði Blackburn, 2-1, eftir að lenda marki undir í fyrri hálfleik. Zlatan Ibrahimovic er nú búinn að skora 24 mörk á tímabilinu með sigurmarkinu í gær. Hann er nú búinn að skora í bikarnum í fjórum löndum. José Mourinho mætir á sinn gamla heimavöll í átta liða úrslitunum, Stamford Bridge, og þarf að finna leið til að leggja topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Chelsea, að velli í næstu umferð. Síðast þegar United-menn mættu á Brúnna fengu þeir vænan skell. Tottenham ætlar ekki að fara út fyrir Lundúnir í bikarkeppninni. Það fékk tvo heimaleiki til að byrja með og valtaði svo yfir Fulham, 3-0, í Lundúnarslag í gær. Spurs-liðið dróst svo á móti Millwall í átta liða úrslitunum á heimavelli en komist liðið áfram bíður þess ferð á Wembley í undanúrslitunum. Wembley er í Lundúnum þannig Tottenham-liðið þarf ekki að kvarta yfir ferðalögum í bikarkeppninni þetta tímabilið.
Enski boltinn Tengdar fréttir Zlatan kom Man Utd til bjargar | Sjáðu mörkin Zlatan Ibrahimovic kom Manchester United til bjargar gegn Blackburn Rovers í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar á Ewood Park í dag. Lokatölur 1-2, United í vil. 19. febrúar 2017 18:00 Utandeildarlið Lincoln komið í 8-liða úrslit eftir sigur á Turf Moor | Sjáðu markið Utandeildarlið Lincoln City er komið áfram í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir frækinn 0-1 sigur á úrvalsdeildarliði Burnley á Turf Moor í dag. 18. febrúar 2017 14:30 Telegraph: Sigrar Lincoln og Íslands á lista yfir þá óvæntustu í íþróttasögunni Sem kunnugt er vann utandeildarlið Lincoln City afar óvæntan sigur á úrvalsdeildarliði Burnley á útivelli í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær. 19. febrúar 2017 23:15 Jóhann Berg fór meiddur af velli eftir kraftmikla tæklingu Jóhann Berg Guðmundsson fór meiddur af velli eftir aðeins 20 mínútur í leik Burnley og Lincoln City í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar sem nú stendur yfir. 18. febrúar 2017 14:02 Mest lesið Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Fótbolti Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Fótbolti Birti margar myndir af sér að „bóka“ Bellingham Fótbolti Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Körfubolti Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Fótbolti Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Fótbolti Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti „Ég kom fram og mamma var grátandi“ Sport Fleiri fréttir Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira
Zlatan kom Man Utd til bjargar | Sjáðu mörkin Zlatan Ibrahimovic kom Manchester United til bjargar gegn Blackburn Rovers í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar á Ewood Park í dag. Lokatölur 1-2, United í vil. 19. febrúar 2017 18:00
Utandeildarlið Lincoln komið í 8-liða úrslit eftir sigur á Turf Moor | Sjáðu markið Utandeildarlið Lincoln City er komið áfram í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir frækinn 0-1 sigur á úrvalsdeildarliði Burnley á Turf Moor í dag. 18. febrúar 2017 14:30
Telegraph: Sigrar Lincoln og Íslands á lista yfir þá óvæntustu í íþróttasögunni Sem kunnugt er vann utandeildarlið Lincoln City afar óvæntan sigur á úrvalsdeildarliði Burnley á útivelli í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær. 19. febrúar 2017 23:15
Jóhann Berg fór meiddur af velli eftir kraftmikla tæklingu Jóhann Berg Guðmundsson fór meiddur af velli eftir aðeins 20 mínútur í leik Burnley og Lincoln City í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar sem nú stendur yfir. 18. febrúar 2017 14:02
Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Körfubolti
Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Körfubolti