Arsene Wenger: Ég reyndi tvisvar að kaupa N'Golo Kante Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2017 17:52 N'Golo Kante eða Granit Xhaka? Wenger reyndi að fá Kante en fékk Xhaka. Vísir/Getty
Arsenal hefur leitað lengi að öflugum varnartengilið inn á miðjuna. Liðið er fullt af flottum sóknarhugsandi miðjumönnum en einn sterkur afturliggjandi miðjumaður hefði getað breytt miklu fyrir lið Arsene Wenger á síðustu tímabilum. Gott dæmi um hvað slíkur leikmaður getur gert fyrir þig er franski miðjumaðurinn N'Golo Kante sem er á góðri leið með að vinna ensku deildina annað árið í röð. Hann vann titilinn með Leicester City í fyrra og er núna allt í öllu inn á miðju Chelsea-liðsins sem er með níu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er einn af aðdáendum N'Golo Kante og hann sagði á blaðamannafundi í dag að hann hafi tvisvar reynt að fá leikmanninn til Arsenal. Sky Sports segir frá. Fyrst reyndi Wenger að kaupa hann frá franska liðinu Caen en svo frá Leicester. Þeir sem þekkja Wenger eru örugglega fljótir að álykta sem svo að hann hafi ekki verið tilbúinn að eyða alvöru pening í Kante. „Ég reyndi að fá hann þegar hann spilaði í frönsku deildinni og svo aftur þegar hann var kominn til Leicester. Það er ekki hægt að útskýra allt. Félagsskiptamarkaðurinn er bara eins og hann er en við sjáum síðan hvert hann er kominn í dag,“ sagði Wenger. „Kante hefur haft gríðarlega áhrif. Það er engin tilviljun að Chelsea er það sem liðið er í dag og hvað Leicester gerði á síðasta tímabili,“ sagði Arsene Wenger meðal annars um N'Golo Kante. Arsenal heimsækir Chelsea á Stamford Bridge á morgun en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 12.30.
Enski boltinn Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Uppgjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Fótbolti UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Fótbolti Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Fótbolti Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Fótbolti Guðrún Karítas í úrslit og Elísabet nálægt því Sport Fleiri fréttir „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Sjá meira