Upphitun fyrir leiki dagsins: Geta City-menn stöðvað Spurs? | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. janúar 2017 10:30
Sjö leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þar ber hæst leikur Manchester City og Tottenham á Etihad vellinum klukkan 17:30. Spurs hefur unnið sex leiki í röð og með sigri á Etihad minnkar liðið forskot toppliðs Chelsea niður í fjögur stig. City steinlá fyrir Everton, 4-0, um síðustu helgi og er lent 10 stigum á eftir Chelsea. Tottenham vann fyrri leik liðanna á White Hart Lane með tveimur mörkum gegn engu. Í hádeginu tekur Liverpool á Swansea City. Með sigri minnkar Liverpool forystu Chelsea niður í fjögur stig. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea þurfa nauðsynlega á stigum að halda en þeir sitja á botni deildarinnar. Þeir eru þó aðeins einu stigi frá öruggu sæti. Fimm leikir hefjast svo klukkan 15:00. Manchester United sækir Stoke City heim. United hefur ekki tapað deildarleik frá 23. október en situr samt sem fastast í 6. sætinu. Stoke er þremur sætum neðar. Everton, sem er á góðu skriði, mætir Crystal Palace á Selhurst Park. Palace á enn eftir að vinna deildarleik undir stjórn Sams Allardyce. West Brom, sem steinlá fyrir Tottenham um síðustu helgi, fær Sunderland í heimsókn. Sunderland hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu fjórum leikjum sínum. West Ham hefur unnið þrjá af síðustu fimm leikjum sínum og mætir Middlesbrough á Riverside. Þá sækir Watford Bournemouth heim.Leikir dagsins: 12:30 Liverpool - Swansea (beint á Stöð 2 Sport HD) 15:00 Stoke - Man Utd (beint á Stöð 2 Sport HD) 15:00 Crystal Palace - Everton 15:00 West Brom - Sunderland 15:00 Middlesbrough - West Ham 15:00 Bournemouth - Watford 17:30 Man City - Tottenham (beint á Stöð 2 Sport HD)
Enski boltinn Mest lesið „Ég er ekki kærastan“ Sport Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Sport Typpið í lagi en skórnir of stórir Sport „Ung kona vinnur gull og verður fyrir fordómum og niðurlægingu“ Sport Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Fótbolti Snoop Dogg gat ekki borgað fyrir hamborgarann á Ólympíuleikunum Sport Hann vann fyrsta gull Brasilíu en af hverju keppir hann ekki fyrir Noreg? Sport Rústaði á sér fótunum en varð samt stjarna leikanna Sport Magnus Carlsen enn einu sinni heimsmeistari Sport „Hann var stressaður og það var svo krúttlegt“ Sport Fleiri fréttir Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Sjá meira