Sigurhrina Arons Einars og félaga endaði í Brighton Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. janúar 2017 21:50 Aron Einar Gunnarsson í baráttunni á suðurströnd Englands í kvöld. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, var að vanda í byrjunarliði Cardiff í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Brighton í ensku B-deildinni, 1-0, á útivelli. Tommer Hemed skoraði eina mark leiksins fyrir heimamenn á suðurströndinni á 73. mínútu en fátt virðist komast í veg fyrir að Brighton fari loksins upp í úrvalsdeildina. Brighton er búið að vera í umspilinu undanfarin ár en það komst á toppinn í B-deildinni með sigrinum í kvöld. Það er nú með 60 stig, stigi meira en Newcastle sem er í röðru sæti en það sem skiptir máli er að liðið er með ellefu stiga forskot á Huddersfield sem er í þriðja sæti. Aron Einar og hans menn eru búnir að vera á uppleið undanfarið en áður en kom að tapinu í kvöld var velska liðið búið að vinna þrjá leiki í röð og ekki tapa í síðustu fjórum. Cardiff er í 16. sæti með 33 stig, átta stigum frá fallsvæðinu og tólf stigum frá umspilssæti. Ragnar Sigurðsson, landsliðsmiðvörður Íslands, sat þriðja leikinn í röð allan tímann á varamannabekknum þegar Fulham tapaði fyrir Reading, 1-0, í B-deildinni í kvöld. Fulham-menn lentu 1-0 undir á 49. mínútu og klúðruðu vítaspyrnu á 89. mínútu en mark þar hefði getað tryggt liðinu eitt stig. Ragnar, sem gekk í raðir Fulham frá Krasnodar í lok ágúst í fyrra, er nú aðeins búinn að byrja einn leik í deildinni og koma við sögu í þremur af síðustu tíu hjá Lundúnarliðinu. Þessi hrina hófst 3. desember í fyrra þegar hann var ekki í leikmannahópnum en áður en að því kom var Ragnar búinn að spila tólf deildarleiki í röð frá upphafi til enda. Fulham er í níunda sæti með 40 stig, fimm stigum frá umspilsæti en það hefði getað komið sér í fína stöðu með sigrinum í kvöld. Jaap Stam og hans menn í Reading eru í þriðja sætinu með 49 stig.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjá meira